aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Frú forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið í síðustu fyrirspurn. Viðbrögð hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra við verðbólgutölum hafa verið allsérstök og mikil áhersla lögð á að kenna öllum öðrum um en ríkisstjórninni, og einkum þó fyrirtækjum sem eru skömmuð fyrir að taka þátt í verkefninu. Í hvaða verkefni? Í hvaða plani? Var kannski bara aldrei til neitt plan? Hvernig getur ríkisstjórn farið fram með þeim hætti sem hún gerir og þegar aðrir fylgja í kjölfarið, gera sams konar hluti, hækka verð eins og ríkisstjórnin hækkar sín verð, sín gjöld og skatta, þá eru menn sakaðir um að vera ekki að spila með? Við þessu var varað fyrir áramót og í umræðu um fjárlögin; ef ríkisstjórnin færi í þetta eins og hún ætlaði sér þá yrðu þetta afleiðingarnar. Hún væri að leggja línurnar með fyrirtækin og enn eigum við eftir að sjá hverjar afleiðingarnar verða til fulls.
En spurningin er þessi: Hyggst hæstv. forsætisráðherra ekki bregðast við og endurskoða planið, hafi yfirhöfuð einhvern tímann verið til plan? Eða ætlar hæstv. ráðherra að láta sér nægja það sem Seðlabankinn benti á samhliða vaxtaákvörðun? Já, og samhliða enn einum útskýringunum á því hvers vegna það voru í rauninni aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem orsökuðu verðbólguna, eins og áður hafði komið fram hjá Hagstofunni og greiningaraðila. En Seðlabankinn ákvað þó að hækka ekki vexti að sinni. Hvers vegna? Vegna þess að það væri yfirvofandi samdráttur. Er það planið? Á að fara með sleggju á hagkerfið og verðmætasköpunina í landinu og ná þannig niður verðbólgu? Ná niður verðbólgu með kreppu?