157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

staða og horfur í efnahagsmálum.

[10:54]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég veit vel að það hefur verið jákvæð þróun þegar kemur að skuldsetningu í íslensku hagkerfi, bæði hjá fyrirtækjum og hjá íslenskum heimilum. Það þýðir ekki að verðtryggingin hafi ekki skapað vandamál. Hér er reyndar farið svolítið úr einu í annað, annars vegar gerð athugasemd við að það eigi að taka það og hins vegar talað um nauðsyn þess að það þurfi að draga úr því. Gott og vel. Hér er samt um að ræða mál sem síðasta ríkisstjórn, sem Framsóknarflokkurinn sat m.a. í — hún snerti ekki á verðtryggingunni í þau tíu ár sem Framsóknarflokkurinn var í ríkisstjórninni.

Orð eru ódýr, hæstv. forseti. Verkin tala. Nú þegar við erum byrjuð að stíga skrefin erum við gagnrýnd fyrir að gera eitthvað sem hv. þingmaður segir að þurfi að gera. Ég fagna því ef við náum sameiginlegri sátt og getum gengið í takt þegar kemur að þessu máli því að mínu mati er þetta ekki flokkspólitískt mál. Þetta er séríslenskt vandamál sem þarf að taka á og ég held að við getum vel náð saman um það hér inni.