157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025.

417. mál
[11:11]
Horfa

ráðherra norrænna samstarfsmála (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir skýrslu samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2025. Skýrslan nær yfir samstarf ráðherra og ráðuneyta á þessum vettvangi. Þá er gerð grein fyrir norrænu samstarfi forsætisráðherra sem fara með yfirstjórn samræmingar norræns samstarfs en fela samstarfsráðherrum Norðurlanda að annast það í sínu umboði. Sem fyrr er skýrslan unnin í góðri samvinnu allra þeirra fagráðuneyta sem taka þátt í samstarfinu en ritstjórn var í höndum Norðurlandateymis utanríkisráðuneytis. Líkt og síðustu ár er að finna stutta samantekt í hefðbundnu þingskjali en skýrslan sjálf er rafræn og aðgengileg í gegnum hlekk í þingskjalinu.

Virðulegi forseti. Undanfarið ár, líkt og fyrri ár, hefur einkennst af sviptingum í alþjóðakerfinu. Norræn samvinna er vissulega ekki undanþegin áhrifum ytra umhverfis. Við verðum þess áskynja sem aldrei fyrr hversu mikilvæg norræn samvinna er fyrir okkur. Ásýnd Norðurlanda og samnorræn gildi eru sterk í alþjóðlegu tilliti. En við lifum á tímum þar sem grafið er undan þeim gildum sem hafa sameinað okkur, styrkt samfélög okkar og komið þeim í fremstu röð. Hér getum við nefnt hluti eins og lýðræði, frelsi og mannréttindi sem eru því miður alls ekki sjálfgefin heldur gildi sem þarf stöðugt að standa vörð um. Í þessum aðstæðum er mikilvægt að við stöndum ekki ein sem þjóð. Við þurfum að vinna náið með þeim löndum sem deila sömu sýn og við, löndum sem trúa á þessi fyrrnefndu gildi og standa vörð um þau. Ávinningur af norrænu samstarfi er mikill og nýtur Ísland góðs af því á margvíslegan hátt, t.d. í þeirri hagkvæmni að sameina krafta og takast á við úrlausnarefni í samstarfi við vinveitt lönd og stærri hagkerfi og auði sem felst í öflugu tengslaneti á öllum stigum stjórnsýslu. Við megum ekki gleyma að Norðurlöndin eru þrátt fyrir allt tólfta stærsta hagkerfi heims með um 27 milljónir íbúa.

Formennskuáætlun síðasta árs bar einmitt heitið ,,Norðurlönd 2025: Sameinuð og sterk.“ Finnland og Álandseyjar veittu starfinu forystu og tóku áherslur formennskunnar mið af framtíðarsýn okkar til 2030 um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030 og að saman myndum við leggja áherslu á græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd. Það þarf ekki að koma á óvart í þessum nýja veruleika sem við búum við í alþjóðakerfinu að formennskulöndin hafi lagt sérstaka áherslu á viðbúnað og samfélagsöryggi, sem og málefni barna og ungmenna og samkeppnishæfni Norðurlanda. Starfið er unnið í 12 ráðherranefndum, embættismannanefndum og vinnuhópum undir þeim. Þá fer einnig mikilvægt starf fram í norrænum stofnunum og er ein þeirra á Íslandi, sem er Norræna húsið í Reykjavík.

Virðulegur forseti. Í byrjun árs tóku gildi nýjar samstarfsáætlanir sem munu gilda til ársins 2030. Þar eru fimm þverlæg áherslumál, sem við lyftum upp, sem snerta allar ráðherranefndirnar. Þau eru: viðbúnaður, stafvæðing og lýðræði, hringrásarhagkerfið, hafið og færni til framtíðar. Langt og opið ferli var við gerð samstarfsáætlana og það virðist hafa skilað sér býsna vel. Það var almenn ánægja og samstaða um efni þeirra en helstu samstarfs- og hagaðilar tóku virkan þátt í gerð þeirra.

Virðulegur forseti. Í skýrslunni má glögglega sjá hversu víðfeðmt og fjölbreytt norrænt ríkisstjórnarsamstarf á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar er. Af handahófi get ég nefnt verkefni um stafræna vellíðan barna og ungmenna, tengslanet fyrir tungumálalíkön innan nýstofnaðs gervigreindarseturs norrænu landanna og Eystrasaltsríkjanna, stöðu norrænna karla og drengja á Norðurlöndum, græn orkuskipti til lengri tíma, seiglu norrænnar þátttöku í alþjóðlegu virðiskeðjum, hlutverk svæða, sveitarfélaga, atvinnulífs og borgarsamfélaga í að byggja upp viðnámsþrótt til lengri tíma, baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi og ég gæti haldið lengi áfram. Ég vil þó lyfta nokkrum málefnum upp hér og fjalla nánar um þau. Þau eru í fyrsta lagi samfélagsöryggi og viðbúnaður, í öðru lagi gervigreind, þá stjórnsýsluhindranir og loks stafrænn hreyfanleiki — en kannski ekki minnst endurskoðun Helsingforssamningsins og vestnorrænt samstarf.

Samfélagsöryggi og viðbúnaður eru ekki lengur valkostur heldur algjör nauðsyn í því samfélagi sem við búum í. Þetta endurspeglast vel í áherslum formennskulandanna á síðasta ári. Við stöndum, eins og ég sagði frá í upphafi, frammi fyrir óvissu og óöryggi. Ég tel þó að með styrku samstarfi og seiglu samfélaga okkar getum við mætt þessum áskorunum. Við getum verndað sameiginleg gildi okkar og við getum byggt sterkara samfélag fyrir framtíðina. Seigla og þróttur snúast ekki aðeins um viðbrögð við krísum heldur líka um það hvernig samfélagið okkar virkar dagsdaglega. Þetta snýst því um að horfa breitt á samfélagið og okkar daglega líf. Það snýst m.a. um að tryggja fæðuöryggi, getu til að takast á við loftslagsvána og heilbrigðisvána, efnahagskrísur og getu til að verja lýðræði okkar sem stöðugt er grafið undan með upplýsingaóreiðu. Norðurlöndin hafa lengi sýnt að við getum og við stöndum saman þegar á reynir. Samfélagsöryggi og viðbúnaður er nýtt þverlægt málefni sem heyrir undir samstarfsráðherrana. Unnið er að því á öllum málefnasviðum Norrænu ráðherranefndarinnar.

Og yfir í gervigreindina. Fyrr á árinu var ég viðstaddur vígslu nýrrar samnorrænnar og baltneskrar gervigreindarmiðstöðvar, New Nordics AI, í Helsinki. Miðstöðin er mjög gott dæmi um verkefni þar sem við tökum höndum saman með líkt þenkjandi löndum og styrkjum stöðu okkar, verndum með öðrum orðum gildin sem við byggjum á. Verkefnið nýtur stuðnings stjórnvalda allra norrænu ríkjanna og hlaut í júní stofnframlag frá Norrænu ráðherranefndinni.?Meginmarkmiðið er að efla samstarf á svæðinu, hraða upptöku gervigreindar og styrkja samkeppnishæfni svæðisins í alþjóðlegu samhengi á sama tíma og við verndum fyrrnefnd gildi.? Gervigreind mun leika lykilhlutverk í framtíðinni og með þessu eru Norðurlöndin að marka sér sérstöðu með ábyrgri notkun tækninnar. Þannig getum við stuðlað að þróun gervigreindar sem tekur mið af okkar sameiginlegu gildum og menningu auk þess sem við eflum samkeppnishæfni svæðisins til allrar framtíðar.

Virðulegur forseti. Yfirlýst stefna er að Norðurlöndin verði samþættasta svæði heims og frjáls för fólks milli landanna gangi sem mest án vandkvæða. Til að gera þetta að veruleika þurfum við að afnema stjórnsýsluhindranir sem eru fyrir hendi. Við þurfum að ryðja úr vegi hindrunum sem verða á veginum svo að borgarar landanna geti óhindrað ferðast, stundað nám, starfað og stundað atvinnurekstur hvar sem er á Norðurlöndum. Mikilvæg vinna í þessu samhengi fer fram á vettvangi stjórnsýsluhindranaráðs sem skipað er fulltrúum frá löndunum. Í nýrri áætlun um frjálsa för fólks á Norðurlöndum sem tók gildi á síðasta ári er pólitísk ábyrgð samstarfsráðherra gerð skýrari í þessum málum. Á árinu samþykktu samstarfsráðherrar að setja í forgang vinnu við stafrænan hreyfanleika og kennslapörun, á ensku: „ID matching“, sem er forsenda þess að nota megi rafræn skilríki þvert á landamæri, að Íslendingur sem á kennitölu í öðru norrænu landi, og þeir eru sirka 150.000, geti frá Íslandi á íslenskum rafrænum skilríkjum skráð sig inn á síður þjónustuveitenda í öðru landi og nálgast viðeigandi upplýsingar um sig þar. Það gefur auga leið að þetta er gríðarlega stórt hagsmunamál fyrir íbúa þessara landa, enda er notkun rafrænna skilríkja alltaf að aukast og farin að valda hindrunum fyrir þá íbúa sem þurfa að nálgast upplýsingar um sig þvert á landamæri, stundum oft í viku. Þessi vinna þarf hins vegar einnig að fara fram innan lands og við ætlum ekki að láta okkar eftir liggja. Ég legg mikla áherslu á það, því að þetta snýst um mikilvæga hagsmuni fólks og fyrirtækja. Málið krefst samstarfs nokkurra ráðuneyta og einnig stofnana. Nú þegar hefur verið komið á virku samstarfi innan stjórnsýslunnar og það er mikilvægt að við höldum áfram að vinna vel á málinu til að tryggja árangur.

Virðulegur forseti. Ég vil einnig nefna umræðu um hugsanlega endurskoðun Helsingforssamningsins. Fyrir rúmu ári, í október 2024, beindi Norðurlandaráð þeim tilmælum til norrænu ríkisstjórnanna að endurskoða Helsingforssamninginn, bæði að uppfæra ákvæði sem eru þegar til staðar og bæta nýjum efnisákvæðum við. Í núverandi umhverfi má telja að eitt stærsta málið varði tillögu um breytingu á stöðu Færeyja, Grænlands og Álandseyja, þannig að þau fái aðild að ráðinu á jafnræðisgrundvelli á við hin löndin. Að mínu mati er þetta ekki bara formsatriði heldur snýst þetta um hina risastóru mynd sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þetta snýst um þær pólitísku áskoranir sem við mætum í alþjóðakerfinu og einnig að standa með nágrannalöndum okkar. Löndin þrjú eru nú þegar mikilvægir þátttakendur og samherjar í norrænu samstarfi og leggja til þess mjög mikið með þekkingu, innsýn og reynslu en það er mikilvægt að þau hafi sömu stöðu og stærri löndin. Ríkisstjórnir Norðurlanda svöruðu þessum tilmælum í febrúar á síðasta ári og í kjölfarið var ráðist í gerð úttektar um þjóðréttarleg og lagaleg álitaefni sem við mætum við hugsanlega endurskoðun á Helsingforssamningnum. Skýrslan hefur nýlega verið birt. Hún er unnin af finnskum lagaprófessor og er ítarleg og vel unnin og verður góður grunnur fyrir löndin til að taka ákvörðun um næstu skref í málinu sem eru nú þegar í undirbúningi.

Virðulegur forseti. Á árinu átti ég þess kost að heimsækja Grænland í fyrsta skipti. Þar tók ég þátt í ársfundi Vestnorræna ráðsins í Ilulissat fyrir hönd vestnorrænu samstarfsráðherranna. Til vitnis um hversu ofarlega Grænland er okkur í huga þessa dagana og samstaða þingsins er með Grænlendi er að forsíðumynd skýrslunnar er einmitt tekin frá Grænlandi. Eins og hefur komið fram í umræðum á þinginu og annars staðar hafa stjórnvöld verulegar áhyggjur af hvernig sótt hefur verið að Grænlandi að undanförnu. Við hér í þinginu erum öll sammála um að það er Grænlendinga sjálfra að ákveða framtíð Grænlands, auðvitað í samstarfi við Danmörku. Við þurfum að vera skýr og við þurfum að halda þessum skilaboðum á lofti. Að mínu mati er mikilvægt að við höldum vestnorrænum sjónarmiðum og áherslum á lofti innan norræns samstarfs og það mun ekkert breytast við uppfærslu Helsingforssamningsinss. Ég hef í störfum mínum reynt að passa upp á þetta því að vestnorræna svæðið er hluti af norræna svæðinu og mikilvægt að einnig sé hugað að þörfum þess. Þar getur verið og er oft blæbrigðamunur á hugðarefnum og áskorunum sem mótast af lífi og aðstæðum hverju sinni í hverju landi fyrir sig. Mér finnst líka eðlilegt skref að styrkja enn frekar þetta vestnorræna samstarf og við þurfum að standa vörð um það. Við þurfum að vera meðvituð um að hugsanleg breytt staða Færeyja og Grænlands í hugsanlega endurskoðuðum Helsingforssamningi mun ekki koma í staðinn fyrir öflugt samstarf vestnorrænu landanna. Þetta eru auðvitað okkar næstu nágrannar. Það er margt sem sameinar okkur og við eigum nú þegar í góðu og nánu samstarfi og eigum að halda því áfram. Það veitir sérstaklega góða innsýn að heimsækja löndin og kynnast lífi og aðstæðum þar. Ég ítreka að við skulum standa enn frekar vörð um þetta mikilvæga samstarf.

Virðulegi forseti. Við getum ekki tekið norrænu samstarfi sem gefnu. Við þurfum að rækta vini okkar, við þurfum að hlúa að vinasambandinu og við þurfum að styrkja norrænt samstarf. Við þurfum að taka virkan þátt, við þurfum að miðla þekkingu og reynslu okkar en við þurfum líka og getum fengið mikið út úr reynslubanka hinna Norðurlandanna þegar við á. Um leið og við lærum hvert af öðru og njótum þess að vera hluti af stærri heild erum við betur í stakk búin til að standa vörð um sameiginleg gildi sem gera okkur sérstök og mikilvæg í alþjóðakerfinu. Eins og ég sagði í upphafi hefur síðasta ár einkennst af óvissu og áskorunum í því kerfi. Það hefur verið sótt að þeim samnorrænu gildum sem við öll hér inni höfum staðið vörð um og stundum tekið sem sjálfgefnum. Þess vegna er enn mikilvægara að við stöndum saman um að verja þau og vinna að framgangi þeirra.