störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir hans svar. Það er gaman að segja frá því, þegar við ræðum hér frjálsa ferð fólks á Norðurlöndum, að þegar því var fyrst komið á hér á landi hafði fólk áhyggjur af því að opnað yrði á útskiptingu þjóðarinnar; að Íslendingar myndu hverfa héðan og Norðmenn, Danir og Finnar kæmu hingað í staðinn fyrir íslenska þjóð. Sú hefur ekki orðið raunin. Í dag er það reyndar þannig að ég held að fjöldi Norðurlandabúa sem hér búa nemi ekki tveimur þúsundum, samkvæmt þjóðskrá, en fjöldi Íslendinga á hinum Norðurlöndunum hlaupi á tugum þúsunda. Við höfum hvað það varðar kannski meira notið þessara hluta en öfugt.
Mig langar kannski aðeins að spyrja varðandi þennan stafræna hreyfanleika og kennslapörun: Veit ráðherra hve langt hefur verið gengið í þessum vangaveltum, hvort einhver hefur fleytt þeirri hugmynd fram að koma á fót samnorrænni kennitölu eða samnorrænum stafrænum skilríkjum eða einhverju slíku? Ef svo er, hvernig tengist það þeirri staðreynd að þrjú af Norðurlöndunum eru hluti af Evrópusambandinu og þar er fólk líka að velta fyrir sér samevrópskum persónuskilríkjum? Mig langar aðeins að forvitnast, í fyrsta lagi um það hvort fólk sé farið að ræða praktískar tæknilausnir í þessum efnum og í öðru lagi hvernig samspil þeirra hefur verið við lausnir sem eru nú þegar á vettvangi Evrópusambandsins.