157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

norrænt samstarf 2025.

421. mál
[12:20]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, Dagbjörtu Hákonardóttur, fyrir góða yfirferð. Það hefur sannarlega margt gerst á þessu ári ef við horfum til samstarfs á sviði Norðurlandanna og margt ótrúlega jákvætt. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson fór yfir stefnumál og vinnu sem snýr að ungmennum. Þar eru sannarlega sóknarfæri þegar kemur að samstarfi á Norðurlöndunum. Ég get nefnt að flokkahópur miðjumanna hefur verið að beita sér fyrir margs konar tillögum, m.a. því að við séum að nota umhverfisvænar lausnir þegar kemur að skipasiglingum á norðurskautssvæðinu og svo mætti lengi telja.

Spurning mín til hv. þingmanns og formanns Íslandsdeildar varðar samvinnu okkar ólíku hópa hér á þingi sem koma að alþjóðamálum. Við erum með samstarf sem snýr að Norðurlöndunum innan NATO, við erum með samstarf sem snýr að Norðurlöndunum innan Vestnorræna hópsins, við erum með samstarf innan Þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál og þannig mætti lengi telja. Spurning mín til hv. þingmanns er því eftirfarandi: Hvaða tækifæri sér hv. þingmaður í því að vinna betur saman hér á okkar þingi? Hvaða tækifæri og möguleikar eru í því og hefur ríkisstjórnin mótað sér einhverja sýn á það hvernig við eigum að nota slíkt samstarf til að efla slagkraftinn? Eins og hv. þingmaður kom inn á er sannarlega eftirspurn eftir þessu samstarfi. Það hefur sjaldan verið mikilvægara og það er líka mikilvægt að við eflum okkar samvinnu hér heima sömuleiðis.