157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

norrænt samstarf 2025.

421. mál
[12:31]
Horfa

Frsm. ÍNR (Dagbjört Hákonardóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir góða spurningu. Ég hef mikinn vilja til þess að hafa það sem leiðarljós, öryggis- og varnarmál verða að vera leiðarljós okkar í öllu okkar alþjóðastarfi en þó á forsendum þeirra gilda sem lagt er upp með í samstarfi okkar við Norðurlöndin. Þau eru þrátt fyrir allt sameiginleg. Mér finnst viðeigandi að hv. þingmaður minnist á þá umræðu og þá ákvörðun sem Finnar hafa tekið um úrsögn úr Ottawa-samningnum, samningi sem leggur bann við notkun jarðsprengna. Þeir hafa núna opnað aftur á notkun þeirra við sín landamæri sem telja 1.000 km við Rússland. Ég verð að fá að koma því að að á vorþingi Norðurlandaráðs í Helsinki, þann sama dag og Alexander Stubb hélt sína ræðu, hafði farið fram fyrsta umræða um úrsögn úr samningnum og ég hitti þar þingmenn, samflokksmenn mína á finnska þinginu, þar sem þetta var mjög viðkvæmt og það voru ekki allir á sama máli um hvað ætti að gera. En jú, þetta opnaði svolítið augu manns fyrir því að Finnar eru auðvitað skrefi á undan. Við þurfum að njóta góðs af því að vissu leyti þótt ég ætli ekki tjá mig um þessa ákvörðun þeirra. Ég átti hins vegar líka fund með finnskum fulltrúum í samstarfi okkar í NORDEFCO þar sem ég spurði m.a. um tækifæri fyrir t.d. Íslendinga til að láta meira að sér kveða í NORDEFCO. Sumir svöruðu: Ja, ég hef nú bara enga sýn á það, geta Íslendingar nokkuð gert það? Þannig að tækifærin eru vissulega til staðar. Ég kem kannski inn á það í seinna andsvari mínu nákvæmlega hvernig við í Norðurlandaráði ætlum að beina tillögum til ríkisstjórna Norðurlandanna um það hvaða spurningum þurfi að svara um tækifæri til aukins samstarfs og hvað sé fram undan.