Alþjóðaþingmannasambandið 2025.
Herra forseti. Á þskj. 687, mál 410, liggur fyrir ársskýrsla Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins eða IPU eins og það er oftast kallað og mun ég í stuttu máli, í forföllum formanns Íslandsdeildarinnar, gefa þingheimi kynningu á helstu málum í brennidepli innan sambandsins á liðnu ári. Ársskýrsla Íslandsdeildar fyrir árið 2025 gerir störfum þingmannanefndarinnar ítarleg skil auk skipan Íslandsdeildar. Ég mun því aðeins stikla á stóru en vísa að öðru leyti í skýrsluna sem mælt er fyrir.
Aðild að IPU, sem er erlend skammstöfun fyrir Alþjóðaþingmannasambandið, áttu í lok árs 2025 183 þjóðþing en aukaaðild að sambandinu fjórtán svæðisbundin þingmannasamtök. Markmið sambandsins er að stuðla að skoðanaskiptum þingmanna frá öllum heimshornum um alþjóðleg málefni, vinna að friði og samstarfi þjóða og treysta í sessi lýðræði og þjóðkjörin fulltrúaþing. Áhersla er lögð á að standa vörð um mannréttindi sem eins af grundvallarþáttum lýðræðis og þingræðis. Þá vinnur IPU að styrkingu þjóðþinga og aðstoðar við þróun lýðræðislegra vinnubragða innan þeirra. Sambandið styður starfsemi Sameinuðu þjóðanna og á margvíslegt samstarf við stofnanir þeirra.
IPU heldur tvö þing á ári auk þess heldur sambandið alþjóðlegar ráðstefnur og málstofur, oftast um málefni sem eru efst á baugi innan Sameinuðu þjóðanna hverju sinni og þá gjarnan í tengslum við tiltekna ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
Á árinu 2025 áttu eftirfarandi aðalmenn sæti í Íslandsdeild: Sú sem hér stendur og er varaformaður, úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður, úr þingflokki Flokks fólksins, og Víðir Reynisson, þingflokki Samfylkingarinnar. Varamenn voru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingflokki Samfylkingarinnar, og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingflokki Flokks fólksins. Arna Gerður Bang var ritari Íslandsdeildar.
Herra forseti. Af þeim fjölmörgu málum sem fjallað var um á vettvangi Alþjóðaþingmannasambandsins á árinu 2025 vil ég leggja áherslu á nokkur atriði. Þar bar hæst umræða um félagsþróun og réttlæti, vernd mannúðarsjónarmiða og stuðning við mannúðaraðstoð á tímum kreppu. Einnig voru í brennidepli þinglegar aðferðir til að draga úr langvarandi áhrifum átaka og aðgerðir gegn skipulagðri alþjóðlegri glæpastarfsemi, netglæpum og fjölþáttaógnum.
Á vorþingi IPU í apríl var samþykkt ályktun um hlutverk þjóðþinga við að stuðla að tveggja ríkja lausn í Palestínu. Ályktunin undirstrikar mikilvægt hlutverk þjóðþinga við að stuðla að friðsamlegri lausn á deilu Ísraela og Palestínumanna með hliðsjón af alþjóðalögum. Jafnframt er hvatt til öflugs stuðnings við mannúðaraðgerðir og til þess að ríki virði alþjóðlegar skuldbindingar. Enn fremur eru þjóðþing hvött til að nýta löggjafarvald sitt til að efla stuðning við tveggja ríkja lausn og tryggja viðurkenningu beggja ríkja, Ísraels og Palestínu, sem sjálfstæðra og fullvalda ríkja.
Einnig var samþykkt ályktun um þinglegar aðferðir til að draga úr langvarandi áhrifum átaka, þar á meðal vopnaðra átaka, á sjálfbæra þróun. Í ályktuninni er fjallað um hvernig vopnuð átök torvelda framgang heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Áhersla er lögð á mikilvægt hlutverk þjóðþinga við að milda afleiðingar átakanna, stuðla að friði og tryggja vernd innviða og grundvallarreglna mannúðarstarfs. Enn fremur er lögð áhersla á að mannréttindi, umhverfissjónarmið og þátttaka allra samfélagshópa séu lykilþættir í endurreisn samfélaga eftir átök.
Þá fór fram almenn umræða um hlutverk þjóðþinga og aðferðir við að stuðla að félagsþróun og réttlæti. Samþykkti þingið yfirlýsingu þar sem áhersla er lögð á nauðsyn þess að efla viðleitni til félagslegrar þróunar til að bregðast við nýjum áskorunum. Þá er kallað eftir endurskoðun á stefnu þjóðþinga um félagslega þróun með áherslu á að fjárfesta í fólki til að styðja við vegferð þess frá fátækt til velsældar. Lögð er áhersla á að lýðræðisvæða efnahagslífið þannig að þeir sem hingað til hafa verið sviptir réttmætum hlut sínum, einkum konur og ungt fólk, njóti sanngjarns og réttláts ávinnings. Einnig er bent á mikilvægi þess að styrkja stofnanir, m.a. með víðtækri og lýðræðislegri þátttöku í mótun reglna um stafræna tækni, þar á meðal gervigreind.
Herra forseti. Á haustþingi IPU í október var samþykkt neyðarályktun um aðgerðir þjóðþinga gegn skipulagðri alþjóðlegri glæpastarfsemi, netglæpum og fjölþáttaógnum sem beinast að lýðræði og mannlegu öryggi. Markmið ályktunarinnar er að efla samstöðu og sameiginleg viðbrögð þinga við vaxandi ógnum sem grafa undan alþjóðlegum friði, lýðræðislegum stjórnarháttum og réttarríkinu. Þá skipulagði IPU málstofu í tengslum við loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP30, sem fór fram í Belém í nóvember árið 2025.
Almenn umræða fór fram um vernd mannúðarsjónarmiða og stuðning við mannúðaraðstoð á tímum kreppu. Í niðurstöðum umræðunnar er bent á að Genfarsamningurinn, samningurinn um bann við jarðsprengjum og önnur alþjóðleg mannúðarlög hafi bjargað milljónum mannslífa og dregið úr þjáningum almennra borgara þegar þeirra hefur verið gætt og þeim fylgt. Þingmenn voru hvattir til að efla og verja mannúðaraðstoð með því að stuðla að fullgildingu mannúðarsamninga, fella ákvæði þeirra inn í landslög, tryggja fjárveitingar til hjálparsamtaka, stuðla að þjálfun herafla og efla samstarf innan alþjóðlegs mannúðarkerfis, m.a. með Rauða krossinum og viðeigandi stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Þá eru þingmenn hvattir til að hafa mannúðarsjónarmið að leiðarljósi í allri ákvarðanatöku, einkum þegar kemur að öryggismálum.
Jafnframt fundaði starfshópur IPU um friðsamlega lausn stríðsins í Úkraínu með það fyrir augum að halda diplómatískum leiðum þingsins opnum fyrir friðaruppbyggingu í framtíðinni. Þá lýstu þingmenn ítrekað áhyggjum af því að stríðið í Úkraínu ógnaði alþjóðaöryggi og ylli efnahagslegri óvissu. Enn fremur fóru fram sérstakir fundir sem beindust að því að brúa bil milli ríkja þar sem spennu gætir, m.a. Armeníu og Aserbaísjans annars vegar og Lýðveldisins Kongós og Rúanda hins vegar.
Af öðrum stórum málum sem tekin voru til umfjöllunar á fundum IPU á árinu 2025 má nefna hlutverk þjóðþinga við mótun traustra úrræða til stjórnunar eftir átök og við endurreisn réttláts og varanlegs friðar, baráttuna gegn gereyðingarvopnum og áhrif vopnaðra átaka á börn. Þá samþykkti nefnd um málefni Sameinuðu þjóðanna tilmæli þess efnis að kona verði í fyrsta sinn kjörin framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Frá stofnun Sameinuðu þjóðanna árið 1945 hafa níu karlar í röð gegnt embættinu, sem endurspeglar karllægt valdakerfi fyrri tíma. Í tilmælunum er áréttað að veruleg framþróun hafi orðið í átt til jafnréttis kynjanna og réttar kvenna til forystu og að bæði Sameinuðu þjóðirnar og IPU hafi gert jafnrétti að lykilþætti í starfi sínu á sviði mannréttinda, þróunar og lýðræðis.
Mikil áhersla er lögð á mannréttindamál í starfi IPU. Í því samhengi vil ég nefna sérstaka nefnd um mannréttindi þingmanna sem gegnir veigamiklu hlutverki innan IPU og gefur út viðamikla skýrslu fyrir hvert þing. Á grundvelli skýrslunnar samþykkir ráðið fjölmargar ályktanir um mannréttindabrot gegn þingmönnum. Nefndin vinnur mikið starf á milli þinga þar sem hún fer yfir mál þingmanna sem mannréttindi hafa verið brotin á, hvort sem um er að ræða fangelsun, hótanir, barsmíðar, mannshvarf eða dauðsfall.
Þá vil ég nefna þá miklu áherslu sem Alþjóðaþingmannasambandið leggur á að styrkja hlut kvenna í stjórnmálum með ráðstefnum, fundum og útgáfu handbóka og skýrslna svo og með ýmsum formlegum og óformlegum hætti. Jafnframt hefur árleg samantekt samtakanna á stöðu kvenna í þjóðþingum heims vakið athygli og er iðulega vitnað til hennar í umræðum og í fjölmiðlum.
Á árinu voru haldnir fundir þingkvenna þar sem rætt var um breytta forystu og leiðir til að takast á við nýjar áskoranir í jafnréttismálum. Þá var herferð IPU fyrir árið 2025, sem bar yfirskriftina „Kynjajafnrétti – skref fyrir skref“, framkvæmd í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá Beijing-yfirlýsingunni og aðgerðaáætlun sem markaði tímamót í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. Herferðin miðaði að því að virkja þjóðþing til að hraða framgangi kynjajafnréttis í stjórnmálum og samfélagi.
Þá er norrænt samstarf mjög sterkt innan IPU og eru norrænu landsdeildirnar almennt mjög virkar í starfi sambandsins. Norrænu landsdeildirnar halda samráðsfund til undirbúnings fyrir hvert IPU-þing og fór Danmörk með formennsku í hópnum árið 2025.
Það er ljóst að fjölbreytt verkefni bíða IPU á árinu 2026 og ber þar helst að nefna umræðu um áskoranir samtímans fyrir lýðræði og hvernig stuðla megi að friðsamlegri samfélögum.
Eins og áður sagði er gerð grein fyrir því sem fram fór á fundum nefndarinnar í fylgiskjölum skýrslu þeirrar sem hér er mælt fyrir og vísa ég til hennar varðandi frekari upplýsingar um störf nefndarinnar.
Ég vil að lokum, fyrir hönd formannsins Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þakka Íslandsdeild gott samstarf á þessum mikilvæga vettvangi og læt að svo mæltu lokið umfjöllun minni um skýrslu Íslandsdeildar IPU fyrir árið 2025.