157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Evrópuráðsþingið 2025.

397. mál
[14:51]
Horfa

Frsm. ÍÞER (Sigurður Helgi Pálmason) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir spurninguna. Ég er fullkomlega sammála því sem þú varst að spyrja hér að. Mig langar aðeins til þess að lýsa því sambandi sem við eigum, þingmenn á Evrópuráðsþinginu. Þegar þessi atburðarás fór af stað í Lettlandi þá höfðu þingmenn í Lettlandi samband við okkur og báðu okkur um ákveðinn styrk, þ.e. það kom upp, mætti segja, ákveðin hræðsla í Lettlandi út af þessu. Hræðslan var við það ef þinginu tækist að koma sér út úr þessum mikilvæga samningi. Þá kom þetta sem oftast vantar í umræðuna um alþjóðamál, þ.e. þetta samband á milli þingmanna, því að við vorum á fullu í öllum samskiptum á Signal og svo voru líka símtöl þar sem við vorum að bakka þau upp. Þannig að já, ég er fullkomlega sammála því sem þú varst að segja.