Evrópuráðsþingið 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég fagna því að við höfum sömu sýn í þessum málaflokki og um mikilvægi þess að standa vörð um öryggi á stóra sviðinu, þ.e. öryggi þjóða og líka öryggi heimilanna og einstaklingsins heima fyrir og að það sé rétt að horfast í augu við að það megi aldrei líta frá því að kynbundið ofbeldi er og verður mikil öryggisógn fyrir alla í heiminum.
Ég vil hins vegar ítreka spurningu mína til hv. þingmanns um það hvernig hann sér fyrir sér að við getum sem þingheimur sameinast um talpunkta og skilaboð sem við viljum koma á framfæri þegar við sinnum alþjóðastarfi á erlendum vettvangi, hvernig við getum beitt okkur á þeim vettvangi. Það er nærtækt að tala um Istanbúl-samninginn sérstaklega sem og aðra samninga og alþjóðlegar skuldbindingar sem varða kynjajafnrétti og kynbundið ofbeldi. Við vitum að það er mikill niðurskurður á heimsvísu í verkefnum sem stuðla sérstaklega að framgöngu þessara málaflokka. Ég legg t.d. áherslu á að það er mikið fram undan fyrir okkur í norrænu samstarfi þar sem starfa sameiginlegar þverpólitískar nefndir þingmanna á öllum þjóðþingum nema hinu íslenska í tengslum við kyn, kynjajafnrétti og t.d. frjósemisfrelsi. Þetta eru nefndir sem hafa tekið sérstaklega fyrir réttindi hinsegin fólks og von er á erlendum gestum til Íslands til að kanna möguleika á því að Alþingi taki með formlegum eða óformlegum hætti þátt í slíku norrænu samstarfi.
Síðan ætla ég líka að nota tækifærið og segja að það eru fordæmi fyrir því að við höfum verið samstiga og tekið þverpólitískt til máls í tengslum við Istanbúl-samninginn á vettvangi Norðurlandaráðs. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir gerði það mjög frækilega hér á fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs sem haldinn var hér í Smiðju og var ómyrk í máli þegar hún talaði um mikilvægi þess að við stöndum ekki bara vörð um orð á blaði heldur að þessum gildum sé framfylgt í reynd og við gerðum það gagnvart fulltrúa lettneska þingsins. Hér getum við svo margt saman.