Evrópuráðsþingið 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að óska hv. þingmanni til hamingju með að vera orðinn einn af varaforsetum Evrópuráðsþingsins. Síðan langar mig áður en ég kem að minni spurningu að fylgja aðeins í kjölfar þessarar umræðu sem hér átti sér stað. Umræðan um Istanbúl-samninginn í Lettlandi er að mínu mati dæmi um hvernig ákveðin öfl geta nýtt mál sem engin pólitísk deila var um til þess að sá fræjum tortryggni, ganga síðan á þingmenn fyrir kosningar og láta þá svara já og nei spurningum um hvort þeir styðji eða styðji ekki uppsögn ákveðins samnings og ganga síðan eftir því eftir kosningar hvort þeir standi við útgefna stefnu sína. Þannig var það núna. Það var gott að þessu var synjað og frestað en því var frestað fram að næstu kosningum þannig að við getum gert ráð fyrir því að þetta verði kosningamál í viðkomandi ríki sem er ekkert endilega gott, eða alls ekki gott. Þetta mál er því miður ekki í höfn og þarna er í rauninni verið að reyna að sjá hve langt þú kemst með því að reka ákveðinn málstað því að annar málstaður sem viðkomandi myndi vilja reka er kannski síður líklegri til að ná árangri innan lands.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það hafi átt sér stað einhver umræða um Grænland á vettvangi Evrópuráðsþingsins, þessi mál og yfirlýsingar Bandaríkjastjórnar, og með hvaða hætti Evrópuráðsþingið hefur tekið þessi mál til umræðu á undanförnum vikum og mánuðum.