157. löggjafarþing — 67. fundur,  5. feb. 2026.

Evrópuráðsþingið 2025.

397. mál
[15:08]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég get ekki látið hjá líða að nota tækifærið og ræða aðeins meira um gildin okkar sem skipta okkur máli í tengslum við alþjóðlegt samstarf þingmanna, hvort sem það er á sviði Norðurlandamála eða Evrópu í víðara samhengi. Ég vil líka nota tækifærið, þar sem mér láðist það áðan, og óska formanni Íslandsdeildar Evrópuráðsins innilega til hamingju með kosningu í stöðu varaforseta Evrópuráðsins. Það er augljóst að við erum með verðugan fulltrúa á vettvangi Evrópuráðsins og vil ég taka undir þær heillaóskir sem formanni hafa verið sendar hér í dag.

Það er eitt sem ég ætla að koma á framfæri og ég tek undir það sem sagt var af hálfu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur í tengslum við umræðu um Istanbúl-samninginn. Mér finnst þetta mikilvægt og ég legg áherslu á það sem ég sagði áðan í ræðu minni og í andsvörum í tengslum við skýrsluflutning minn á störfum okkar í Íslandsdeild Norðurlandaráðs, að við erum vinaþjóð Eystrasaltsríkjanna, við eigum sérstakan stað í hjörtum þeirra. Við höfum séð það í heimsóknum okkar á vegum utanríkismálanefndar til Litháens, og síðar reyndar líka Póllands, að Litháar bera mikla virðingu fyrir frumkvæði Íslands til að viðurkenna sjálfstæði þjóðarinnar og ríkisins í kjölfar hruns og falls Berlínarmúrsins á sínum tíma og er óþarfi að rekja það í miklum smáatriðum.

En ég vil að það komi fram hér skýrt — og þetta er nú ástæðan fyrir því kem hér upp — í máli mínu að Litháar eru t.d. ekki aðilar að Istanbúl-samningnum. Þeir hafa ekki undirritað þennan samning. Við vitum að það eru mismunandi skoðanir á því. Forsætisráðherra Litháens kom í heimsókn til okkar á Alþingi í haust og lýsti þar skoðun sinni afdráttarlaust um að henni væri það þvert um geð að landið hennar væri ekki aðili að samningi sem hefði að geyma mjög almennar stefnuyfirlýsingar um að það ætti að vinna markvisst gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi. Það sem hefur öðru fremur valdið því að þessi samningur hefur orðið að pólitísku bitbeini í Eystrasaltinu er að í honum er að finna almenn ákvæði um að það eigi að vekja upp umræðu á meðal barna í menntakerfinu um hefðbundin kynjahlutverk. Við erum bara komin á þann stað í heiminum í dag að frjálsar lýðræðisþjóðir með hátt menntunarstig, sem gengur vel, sem vilja vera hluti af samkeppnishæfasta svæði heimsins, sem eru Norðurlöndin — að þetta er orðið umdeilt; að það megi ekki vekja upp umræðu í kennslustofu um hvort það sé eðlilegt að strákar vaski upp eftir matinn. Þetta eru umræðurnar af þingunum í þessum löndum.

Forseti. Ég vil ekki vera með nein harmakvein hérna. Þetta er tækifæri fyrir okkur til að styðja við þingmenn sem þurfa á okkar stuðningi að halda í að kveða niður upplýsingaóreiðu sem sannarlega berst víða af öllu afli frá þjóðum sem vilja vekja upp umræðu af þessu tagi með neikvæðum tón í þeirra samfélögum sem beita mjög úthugsuðum og útfærðum aðferðum til þess að kynda undir slíkri umræðu sem er til þess fallin að vekja upp ósætti innbyrðis í þjóðfélögunum.

Forseti. Svona virkar upplýsingaóreiðan. Þetta er fjölþáttaógn sem við eigum að taka alvarlega. Þetta er ekki eðlileg þróun á lýðræðislegri umræðu sem er sjálfsprottin í þessum þjóðfélögum. Hún kemur að utan og þetta er markvisst. Ég stend við þá skoðun mína.

Nú þurfum við að taka höndum saman sem þjóðþing, sem samfélag fólks sem nýtur góðs af því að búa í landi þar sem svona er sem betur fer ekki, ekki enn þá a.m.k., til mikillar umræðu, þótt ég vilji ekki hrósa happi of snemma. Við vitum auðvitað að það eru alls konar gerjanir í umræðu varðandi gildi og jafnrétti sem við höfum tekið sem gefnu í gegnum tíðina. Mér sárnar satt best að segja að í vikunni sem er að líða voru sögð orð um stöðu kynjajafnréttis hér á landi sem ég hélt að heyrðu sögunni til. Það er vegna þess að við söfnum upplýsingum um kynjajafnrétti og þær áskoranir sem við stöndum fyrir í okkar þjóðfélagi sem við vitum hvað þarf að gera og ég vona að það verði sem minnst um slíkar úrtöluraddir inni í þessum sal.

Ég ætla svo sem ekki að teygja umræðuna mikið meira um akkúrat þetta en ég held að í tengslum við störf okkar innan Evrópuráðsþingsins og Evrópuráðsins sé full ástæða til þess að ganga skipulega til verks í því að styðja fulltrúa frá Eystrasaltinu í því að tala skýrri röddu um þau gildi sem við viljum viðhafa á þessu svæði, sem þau vilja undirgangast til að geta talist fullgildur samstarfsaðili okkar Norðurlandanna, hvort sem það er til hliðar við okkur innan Norðurlandaráðs eða sem mikill og áreiðanlegur bandamaður innan NB8-samstarfsins, því að við viljum svo sannarlega taka höndum saman. En gildin okkar eru ekki bara orð á blaði.