útgjaldavöxtur og hagstjórn.
Frú forseti. Í grein í Morgunblaðinu 10. ágúst 2023 sagði hæstv. utanríkisráðherra, þá þingmaður í stjórnarandstöðu, að verðbólga væri afleiðing pólitískra ákvarðana. Hún gagnrýndi hallarekstur og útgjaldavöxt harðlega, varaði við því sem hún kallaði aflátsbréf stjórnvalda, tímabundnar skýringar og loforð sem réttlættu áframhaldandi halla í stað stefnubreytinga og lagði til tuga milljarða aðhald, niðurgreiðslu skulda og að hafnað yrði sjálfvirkum skuldbindingum sem ýttu undir eftirspurn, svo vitnað sé orðrétt í hæstv. ráðherra.
Á þeim tíma stóð þjóðin frammi fyrir erfiðri stöðu; eldgosahrinu á Reykjanesskaga og efnahagsáhrifum Covid-19 faraldursins. Grindavík var rýmd fáeinum mánuðum eftir að ráðherra lét þessi orð falla. Í þessu neyðarástandi taldi ráðherra nauðsynlegt að draga úr ríkisútgjöldum og búa í haginn fyrir lægri verðbólgu og vexti. En nú stendur ráðherra hins vegar að boðaðri stefnu í ríkisstjórn sem hefur aukið ríkisútgjöld um 143 milljarða frá fyrra ári og hyggst nú lögfesta sjálfvirka hækkun ríkisútgjalda til framtíðar með frumvarpi sínu um tengingu greiðslna úr almannatryggingakerfinu við launavísitölu. Þar með munu milljarðar renna sjálfkrafa úr ríkissjóði á hverju ári óháð stöðu efnahagsmála, framleiðni og greiðslugetu ríkissjóðs. Hyggst ráðherra hunsa aðvaranir verkalýðsfélaganna, atvinnulífsins, fjármálaráðuneytisins og fjármálaráðs um alvarleg hagstjórnarmistök? Hvernig réttlætir ráðherra að standa nú að slíkri stefnu í ljósi eigin afdráttarlausu viðvarana árið 2023 um að útgjaldavöxtur ríkisins (Forseti hringir.) ýti undir verðbólgu og knýi fram hærri vexti?