útgjaldavöxtur og hagstjórn.
Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra kallar hér: Rétt skal vera rétt. Ég tek undir það að rétt skal vera rétt. Núverandi ríkisstjórn tók við ÍL-sjóðnum og afgreiðsla á því máli var færð upp í hendurnar á núverandi ríkisstjórn. Hæstv. ráðherra getur hlegið að því en hún væri ekki búin að leysa það mál ef svo hefði ekki verið. Ég bið hæstv. ráðherra að svara skýrt og án útúrsnúninga: Stendur hún enn við þá greiningu sína frá árinu 2023 að það séu fyrst og fremst pólitískar ákvarðanir sem leiða til verðbólgu? Ef svarið er já, hvernig réttlætir hæstv. ráðherra þá stuðning sinn við frumvarp sem er beinlínis verðbólguhvetjandi? Ef svarið er nei, hvernig skýrir ráðherra þá að hún hafi sjálf varað við aflátsbréfum og kallað eftir tugmilljarða aðhaldi, niðurgreiðslu skulda og höfnun sjálfvirkra ríkisútgjalda en beiti sér nú fyrir lögfestingu slíkra sjálfvirkra skuldbindinga? Og rétt skal vera rétt, hæstv. ráðherra.