útgjaldavöxtur og hagstjórn.
Virðulegi forseti. Það er nefnilega allt á réttri leið og rétt skal vera rétt. Við erum að sjá það að umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir, sem ég einmitt þrýsti á ríkisstjórnina á sínum tíma að fara í, að taka erfiðar ákvarðanir — (Gripið fram í.) það hefur verið farið í umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir og hagræðingaraðgerðir og það verður haldið áfram á þeirri leið og þeirri vegferð, þannig að það sé alveg skýrt.
Ég vil undirstrika það sem skiptir mjög miklu máli: Já, bæði forsætisráðherra og ég, og fleiri í ríkisstjórninni, viðurkennum alveg að það var vont að fá þessar verðbólgutölur en þetta er vegna einskiptisaðgerða. Þegar við lesum nánar athugasemdir og greinargerð Seðlabankans þá liggur ljóst fyrir að undirliggjandi verðbólga er minni. Við skulum ræða þetta næst þegar verðbólgutölur verða sýndar. Hitt er síðan að þetta er á jákvæðri leið, við erum að sjá lánshæfismat ríkissjóðs Íslands hækka. Það er jákvætt, og vel að merkja niðurgreiðsla skulda — það er 10% (Forseti hringir.) lækkun ríkisskulda síðan þessi ríkisstjórn tók við. Geri aðrir betur.