157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

breyting á búvörulögum og frumvarp um grásleppuveiðar.

[15:21]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hún lýtur að tveimur málum sem nú eru í þinglegri meðferð; annað mál atvinnuvegaráðherra um breytingar á búvörulögum og hitt þingmannamál um grásleppu. Varðandi fyrra málið þá er hv. þingmaður að spyrja og vísar í fyrirspurn sinni og athugasemdum til umsagnar, einnar af þó nokkrum sem mér telst til að hafi skilað sér inn á upphafsskrefum þessarar þinglegu meðferðar og var skrifað að ósk Mjólkursamsölunnar, ef ég fer rétt með frétt eða uppslátt af síðum Morgunblaðsins um málið. Ég hygg að það komi engum hér í þingheimi á óvart að Mjólkursamsalan er ekki allsendis ánægð með málið. Þar er verið að gera ákveðnar breytingar sem miða að því að ýmislegt í starfsemi Mjólkursamsölunnar, frekar en áður, lúti ákvæðum samkeppnislaga og hún hafi ekki algerlega sína hentisemi þegar kemur að samvinnu og samruna heldur lúti í einhverjum málum yfirráðum Samkeppniseftirlitsins. Varðandi það hvort ég sem ráðherra ætli að grípa þar inn í þá væri það sannarlega saga til næsta bæjar ef ráðherra færi að grípa inn í þinglega meðferð eftir að hafa skilað inn frumvarpi. Málið er í þinglegri meðferð. Ég treysti atvinnuveganefnd, framsögumanni málsins og eftir atvikum öðrum þingmönnum í nefndinni til að taka tillit til framkominna umsagna og vinna málið eftir sinni bestu samvisku. Það liggur bara fyrir að þessu máli er ætlað að byggja undir hag bænda og tryggja að þeir fái til sín stærri hluta en hefur tíðkast af virðiskeðjunni og jafnframt, þrátt fyrir að það sé verið að leyfa umtalsverðar undanþágur frá samkeppnislögum í ljósi oft og tíðum erfiðrar samkeppnisstöðu í landbúnaði, þá sé ekki að vera að henda grundvallarprinsippum samkeppnisréttar og neytendaverndar algerlega fyrir róða. Um það snýst þetta mál.

Varðandi grásleppuna (Forseti hringir.) þá óskar þingmaður eftir afstöðu ráðherrans til þess þingmannamáls sem um ræðir. Sú afstaða mun koma fram í atkvæðagreiðslu.