157. löggjafarþing — 68. fundur,  9. feb. 2026.

breyting á búvörulögum og frumvarp um grásleppuveiðar.

[15:24]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra skilst að það hafi verið skilað inn umsögnum. Ráðherra er með öðrum orðum að segja hér þingi og þjóð að hún hafi ekki kynnt sér þessar umsagnir (Gripið fram í.) sem eru búnar að liggja fyrir um þetta mál núna í nokkra daga. Ja, það er mikið að gera hjá ráðherranum, ég segi ekki annað. Svo er reynt að vísa ábyrgð á Mjólkursamsöluna þegar um er að ræða alveg sérstaka greinargerð sem reyndar fylgir annarri óháðri umsögn sem send hefur verið til þingsins. Hún er sótt sem rökstuðningur frá þessum fyrrverandi forsetum Hæstaréttar en er alveg sérstök greinargerð, yfir 70 blaðsíður. Það er í raun verið að fella hæstaréttardóm fyrir fram yfir þessu máli og ráðherrann ætlar ekkert að bregðast við. Það er ekki á hennar ábyrgð. Það kemur til viðbótar við allar umsagnirnar frá bændum og hagsmunasamtökum bænda sem eru allar á sama veg. Og að segja að hér sé neytendavernd sem eigi að ráða — Hæstiréttur felldi dóm um þau lög sem voru sett og staðfesti að þau stæðust alla skoðun. (Forseti hringir.) Svo er stórmál sem snertir 180 fjölskyldur í landinu, litlar útgerðir, grásleppuútgerðir, sem ráðherrann ætlar ekki að hafa skoðun á. Þetta er málaflokkur hennar. Aðför að fiskveiðistjórnarkerfinu, hún ætlar ekki að hafa skoðun á því (Forseti hringir.) fyrr en við atkvæðagreiðslu í þinginu. Ég er orðlaus, virðulegi forseti.

(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutímann.)