157. löggjafarþing — 69. fundur,  10. feb. 2026.

dagskrártillaga.

[13:42]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Á þremur fundum með formönnum flokka í desember bað ég formenn stjórnarandstöðuflokkanna ítrekað að afgreiða mál um afturköllun verndar, þau Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Sigurð Inga Jóhannsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Ítrekað, á hverjum einasta fundi. Alltaf var nei, nei, þvert nei í öllu þessu. Það var allur viljinn þá þannig að þetta kemur mér mjög á óvart. En hitt kemur mér ekki á óvart, við sjáum að mál um afturköllun verndar er strax á eftir fyrsta dagskrármálinu, máli þar sem stjórnarandstöðunni er mjög í mun að aldraðir og öryrkjar fái ekki sínar kjarabætur. Það er þeirra málþóf. Það er nefnilega málið. Málþófsflokkarnir frá síðasta ári eru að birtast núna í fullum skrúða. Við skulum hafa það hugfast. — Ég segi nei við þessari dagskrártillögu.