um atkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Þetta er auðvitað algerlega ótækt. Þegar skýr merki eru gefin um að menn vilji gera grein fyrir atkvæði sínu, augnsamband næst við þá sem stjórna hér ferðinni í þinginu, þá dugar það ekki til. Okkur er ekki gefið tækifæri samt sem áður. Ekki veit ég hver ástæðan er. Ég trúi ekki að það sé vegna misskilnings því hér aftan við mig, frú forseti, er mikil reynsla þannig að það er eitthvað annað sem býr að baki. Mátti ekki gefa þessari umræðu lengri tíma? Mátti ekki gefa fleiri þingmönnum tækifæri til að útskýra hvers vegna þeir hygðust styðja tillöguna? Mátti ekki minna á það, öfugt við orð hæstv. ráðherra hér áðan, að þessi tillaga og þessi áhersla við lok síðustu umræðu fyrir jól kom eftir að gert hafði verið samkomulag um hvernig þinglokin yrðu? Var allt þetta of viðkvæmt til að þetta fengist rætt hér í salnum?