umræða um veiðistjórn grásleppu.
Frú forseti. Það er áhugavert að hlýða hér á ræður stjórnarandstöðunnar, þar er allt í efsta stigi; það er fordæmalaust og steininn tekur úr og þaðan af verra hvað varðar vinnubrögð í þessari nefnd sem þeir sitja í. En ég er alveg á því að þetta mál snýst einfaldlega um pólitík. Þetta er alveg skýrt stjórnarskipunarlega séð enda er í greinargerð frumvarpsins vitnað til ekki eins, ekki tveggja, þriggja, fjögurra, heldur nokkurra, hvort það voru ekki sex eða sjö hæstaréttardómarar sem taka undir að þetta sé hægt að gera og að það sé mjög eðlilegt að fara í þessa vegferð. Enda er þessi breyting í samræmi við markmið laga um stjórn fiskveiða. Það er svolítið sérstakt þegar stjórnarandstaðan kemur hérna og talar um eitthvað fordæmalaust án þess að fara, virðist vera, yfir greinargerðina sem liggur fyrir í málinu. Og svo er bara heimtuð ný og ný álitsgerð héðan og þaðan en ekki er farið yfir þá greinargerð sem liggur fyrir, hún er alveg skýr, (Forseti hringir.) og ekkert álitamál hvað það varðar. Þetta snýst um pólitík og það er vilji meiri hlutans á þingi að fara þessa leið í þágu byggðanna.