157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

umræða um veiðistjórn grásleppu.

[14:13]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Það mál sem hér um ræðir er auðvitað stórpólitískt mál og hefur verið umdeilt í fjölda ára. Þetta frumvarp sem við erum að fjalla um hér var lagt fyrst fram síðastliðið vor, aftur lagt fram síðastliðið haust, fór úr nefndinni í 2. umræðu fyrir tæpum þremur mánuðum og hefur fengið ítarlegar umsagnir og gestir komið á fundi nefndarinnar. Það var gert hlé á 2. umræðu um daginn, fyrir hálfum mánuði, og þá var óskað eftir gesti frá atvinnuvegaráðuneytinu. Við fengum þann gest. Það komu ekki fram fleiri óskir fyrir það, fyrir þá ósk um að gert yrði hlé á 2. umræðu. Við uppfylltum það. Þá komu fleiri óskir. Við getum ekki staðið endalaust í því að tefja mál sem eru búin að fá mikla lýðræðislega umræðu með áframhaldandi óskum þegar málið er fullbúið (Forseti hringir.) og er pólitískt mál sem þarf að útkljá hér í þingsal.