beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegi forseti. Hér hefur verið komið upp og fundið ýmislegt að vinnubrögðum í atvinnuveganefnd. Á síðasta þingi var ýmislegt fundið hér í störfunum að þeim formanni sem þá var og nú er kominn nýr formaður og hann virðist vera að einhverra mati ómögulegur líka. Ég held að þetta snúist ekkert endilega um vinnubrögðin í nefndinni heldur er staðan bara sú að hugmyndafræðilegur ágreiningur er kannski hvað mestur í atvinnuveganefnd, svo að við séum hreinskilin með það. Þarna eru mjög ólíkar skoðanir á því hvaða stefnu eigi að taka í þessum málum. Hér er stundum nefnt: Af hverju kemur forsetinn ekki bara og sker á þennan hnút? Það er einfalt, það þarf bara að að úrskurða, taka einhverja ákvörðun. Við skulum samt hafa í huga að ef við föllumst á það að það sé forsetans að grípa hér inn þá getur forseti annars vegar ákveðið að fallast á það að þessi beiðni komi fram og það mun hafa þau áhrif að málið hlýtur að tefjast töluvert, vegna þess að auðvitað þarf stofnunin sinn tíma til að koma með álit sitt. Og þá er, eins og hefur komið fram, þessi vertíð kannski svolítið í húfi. (Forseti hringir.) Ef forseti ákveður hins vegar að fallast ekki á beiðnina, verða þá ekki bara öll sátt hérna inni og allir glaðir og engin umræða um það? Ég leyfi mér að efast um það. Ég held að það yrði líka töluverð umræða um það ef forseti myndi skerast í leikinn og taka ákvörðun um að fallast ekki (Forseti hringir.) á þessa beiðni í samræmi við 62. gr. þingskapa, sem forseta er auðvitað heimilt að gera.