157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[18:56]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir í Flokki fólksins segir að við eigum bara að sætta okkur við það að þessu máli sé lokið og að það klárist núna. Það hafi ekki verið hægt tímans vegna að verða við þessari beiðni okkar um álit Lagastofnunar Háskóla Íslands á málinu. Þá ætla ég bara að rekja það aðeins, virðulegur forseti, að þetta mál komi inn í þingið í október. Ólíkt öllum öðrum þingmannamálum var þetta mál tekið fram fyrir öll mál í nefndinni til umfjöllunar sem er alger undantekning þegar um þingmannamál er að ræða nema um það sé víðtæk samstaða í nefndinni. Þetta á sér ekki fordæmi í öðrum nefndum. Það voru gestakomur og síðan var nefndarálit. Síðan var bara allt í einu tilkynnt að málið yrði tekið út úr nefndinni án þess að við værum búin að fá fulltrúa ráðuneytisins, forstjóra Fiskistofu og fleiri gesti jafnvel, aðallega þessa tvo, sem við vorum búin að óska eftir. Síðan bara leið og beið. (Forseti hringir.) Ítrekað fundarfall í nefndinni af því að það var ekkert um að fjalla og málið síðan allt í einu komið á dagskrá. (Forseti hringir.) Málið var stöðvað og nefndinni gert skylt að kalla gesti okkar á fund. (Forseti hringir.) Þessi beiðni okkar er í framhaldi af því, virðulegur forseti, hvað þar kom fram frá einhverjum mestu sérfræðingum (Forseti hringir.) þjóðarinnar í þessum málum, að leita eftir lögfræðilegu áliti frá hlutlausum aðila. (Forseti hringir.) Það er heimatilbúinn vandi hvað þetta mál hefur dregist.

Virðulegur forseti. Ég biðst velvirðingar á því hvað ég er búinn að vera lengi.