157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[19:09]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Þetta mál hófst þannig að atvinnuveganefnd samþykkti að óska eftir áliti Lagastofnunar Háskóla Íslands. Eftir hvatningu á nefndarfundum, skýra hvatningu, samþykkti nefndin það en svo allt í einu var það afturkallað. Í viðleitni sinni hafa þingmenn minni hluta atvinnuveganefndar sent spurningarnar á atvinnuvegaráðuneytið og beðið um að svörin komi þá alla vega þaðan að lágmarki. Það er reynt að fara milliveg, það er reynt að koma til móts við meiri hlutann í þessu máli. Er það ekki eitthvað sem er hægt að sammælast um, að við geymum umræðu um þetta mál alla vega þangað til atvinnuvegaráðuneytið er búið að svara þessum spurningum? En það er til of mikils mælst hér?