frumvarp um veiðistjórn grásleppu.
Frú forseti. Það hafa verið hér þó nokkuð miklar umræður í þessum sal um vinnulag í þessu máli. Ég kom nokkrum sinnum upp í fyrradag og harmaði, og ég ætla að harma það enn eina ferðina, vinnulag í nefndinni, í atvinnuveganefnd, sem er fyrir neðan allar hellur. Ráðuneytið sendi seint í gærkvöldi svar þar sem þeim ber ekki lagaleg skylda til að leggja mat á þingmannafrumvörp. Við höfum mikla reynslu af því að þingmannamál sem hafa verið keyrð hér í gegn hafi verið meingölluð og það hefði þurft að endurskrifa þau frumvörp upp á nýtt. Ég vil taka það fram að á fundi atvinnuveganefndar, sem var að ljúka rétt í þessu, óskuðum við eftir því að haldinn yrði opinn fundur í nefndinni með ráðherra þar sem ráðherra kæmi fyrir nefndina og útskýrði þetta mál nánar. (Forseti hringir.) Ég ætla líka að taka undir það að hér var samið um þetta mál og stjórnarandstaðan hefur staðið við þann samning sem stjórnarmeirihlutinn hefur ekki gert.