friðlýsing virkjunarkosta í rammaáætlun.
Virðulegi forseti. Nýlega greiddum við atkvæði um átta virkjunarkosti, eða afdrif átta virkjunarkosta, í rammaáætlun. Á þeim sama fundi og í þeirri sömu atkvæðagreiðslu var einnig kveðið upp úr með afmörkun nokkurra kosta sem fóru í vernd. Vil ég þar nefna Hrafnabjargavirkjanir A, B og C og fleiri virkjanir, Skatastaðavirkjun o.fl., sem við greiddum atkvæði um.
Varðandi þessa verndarkosti vil ég nefna að afmörkun þessara kosta miðast við að það sé friðlýst frá árósum og allt til upphafs vatnasviðs. Nú hefur Landsvirkjun m.a. vakið athygli á því að þetta sé ekki í samræmi við lög um rammaáætlun. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Er ráðherrann sammála því að friðun með þessum hætti geti gert það að verkum að mögulega verði virkjunarkostirnir, sem geta verið fleiri en einn á virkjunarstað, friðlýstir að ósekju?