fjölgun lögreglumanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra kærlega fyrir svarið. En ástæðan fyrir því að ég er að varpa þessari spurningu hér upp er einfaldlega sú að ég hef ákveðnar grunsemdir um það að embættin hafi ekki verið að nýta þessa fjármuni í aukinn mannskap, að þetta hafi farið í rekstur embættanna sem er mjög víða mjög þungur og var mjög víða mjög þungur. Ég vildi bara koma hingað upp og benda hæstv. dómsmálaráðherra á þetta. Ég held að það færi mjög vel á því að hæstv. dómsmálaráðherra myndi gera ákveðna greiningu á því hvernig þessi aðgerð, sem var svo þörf og brýn, að fjölga lögreglumönnum um 50, hafi skilað sér. Það er vont fyrir okkur sem erum hér í þessum þingsal að vera að samþykkja góð verkefni eins og þessi sem ná síðan ekki í gegn út af einhverjum öðrum ástæðum.