Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir að hefja þessa umræðu og hæstv. ráðherra fyrir að vera hér til svara. Ég vil í þessari ræðu minni hvetja ráðherra til dáða í þessum málaflokki. Þetta er mikilvægt mál. Við horfum á alvarlegt ástand sem fer versnandi og því fagna ég því að ráðherra sé komin af stað með stefnu og strax byrjuð að hrinda af stað verkefnum. En betur má ef duga skal og mig langar að beina athyglinni sérstaklega að þessu mikilvæga alþjóðlega samstarfi sem við erum í en getum bætt enn þá betur. Við erum í samstarfi, auðvitað þvert á starfsemi, við lögreglu, tollgæslu og landamæravörslu, en við erum með tengslafulltrúa í Haag þar sem við erum með fulltrúa hjá Europol og Eurojust. Við erum í alþjóðlega samstarfinu Politi og Toll i Norden eða PTN og þar getum við líka bætt við fólki. Nýlega var allsherjar- og menntamálanefnd í heimsókn í Haag og við kynntum okkur þetta samstarf og þá vinnu og þau verkefni sem íslenskir tengslafulltrúar þar sinna og það er alveg ljóst að þeirra vinna er að skila mjög miklu í því að ná utan um þessa starfsemi sem tengist Íslandi. En við urðum líka alveg vör við að það er mikið álag á þessu fólki og full ástæða til að huga að því hvort ekki sé rétt að fjölga starfsmönnum þarna úti í þessu samstarfi. Við þurfum líka að huga að því að geta tekið þátt í að elta alla keðjuna í þessu þar sem við horfum á fólkið sem stundar þessi glæpi, efnin sem er verið að flytja til landsins og jafnvel frá því, þýfið og ekki síst að elta fjármagnið. Með þverfaglegri samvinnu eins og er á Íslandi og eins og við sjáum í Haag eru bestir möguleikar til að ná utan um þetta. Við þurfum að vera skipulagðari og agaðri heldur en glæpahóparnir og þannig náum við bestum árangri.