Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.
Virðulegur forseti. Skipulögð glæpastarfsemi er ógn við samfélagið, hún er raunveruleg ógn við okkar samfélag, ógn sem hefur fylgt okkur lengi en því miður farið vaxandi á síðustu árum. Greiningardeild ríkislögreglustjóra var sett á fót árið 2007, eins og hv. þm. Karl Gauti Hjaltason kom inn á áðan. Í fyrstu skýrslu sinni árið 2008, sem sá sem hér stendur tók einmitt þátt í að rita, kom fram, og ætíð síðan, að þessi ógn er raunveruleg og henni er spáð vexti. Vexti hefur verið spáð í öllum skýrslum deildarinnar síðan þá og það er einmitt staðan sem við sjáum nú. Við munum sjá þetta aukast enn frekar ef ekkert verður að gert. Okkur ber að grípa inn í til að reyna að sporna við þeirri þróun sem hefur verið spáð og mun að öllum líkindum raungerast hér á landi. Þó að við séum eyja, virðulegur forseti, þá erum við ekki ónæm fyrir brotum af þessu tagi. Það hefur lengi verið umræðan að ekkert slíkt myndi gerast hér á landi en það er því miður ekki rétt.
Í síðustu skýrslu ríkislögreglustjóra segir, með leyfi forseta, að skipulögð brotastarfsemi hafi í för með sér gífurlegan samfélagslegan kostnað. Hún brenglar samkeppni með því að undirbjóða löglega starfsemi og veldur auknu álagi á réttarvörslukerfið og þar með fangelsin. Á þau varnaðarorð sem koma fram í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra ber okkur að hlusta og okkur ber að bregðast við. Þar gegnir lögreglan lykilhlutverki. Lögreglan þarf aukið fjármagn og auknar heimildir til að bregðast við. Ef okkur hér í þessum sal er alvara með að taka á þessari (Forseti hringir.) þróun þá skulum við sýna það í verki. Það mun ekki standa á okkur í Framsókn að koma með í þá vegferð.