Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.
Frú forseti. Hér er um mikilvæga umræðu að ræða og það er rétt að taka undir þær áhyggjur sem hafa komið fram. Síðan vil ég þakka fyrir ágæt svör hæstv. ráðherra því að samstiga ríkisstjórn er að bregðast við. Hún er að gera það m.a. með því að efla lögregluna og auka samvinnu, alþjóðasamvinnu til að eiga við skipulögð glæpasamtök. Og það bar árangur nú ekki fyrir svo löngu; 11 manns voru handteknir. Síðan skiptir auðvitað máli sú pólitíska umræða sem fer fram hér á hinu háa Alþingi, þ.e. að við fáum hér stuðning við löggæsluyfirvöld þannig að menn viti það sem eru í mikilvægum störfum að þeir hafi bæði skilning og stuðning. Það skiptir máli.
Ég vil líka nefna þann þátt sem ríkisstjórnin og hæstv. dómsmálaráðherra hafa lagt áherslu á, þ.e. að efla og treysta landamærin. Það er ljóst að það er að bera árangur. Brottvísanir eru að aukast þannig að hér erum við að ná árangri og það ber að þakka. Við náðum nú loksins að ljúka hér ágætu máli í síðustu viku, þ.e. að afturkalla alþjóðlega vernd. Það er liður í því að geta átt við þá sem eru ekki að vinna þjóðinni gagn og er hægt að losa sig við, þannig að við erum hér að gera góða hluti. Það er gott að eiga stuðning hjá stjórnarandstöðunni í þessum málum því að, eins og ég nefndi hér fyrr í ræðu minni, víður pólitískur stuðningur í þeirri vinnu sem fram undan er við að gera Ísland öruggara skiptir verulega miklu máli.