fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Hvar er hæstv. atvinnuvegaráðherra? Hún lýsti því hér yfir að hún myndi nú skýra sína afstöðu í atkvæðagreiðslu. Það lá fyrir eftir klukkan níu í gærkvöldi að þetta mál ætti að keyra í gegn, ekki bara atkvæðagreiðsluna sem núna er fyrir höndum eftir 2. umræðu, heldur ætti að slíta hér fundi, boða nýjan fund og keyra málið í gegn í 3. umræðu og atkvæðagreiðslu, þannig að það er í dag. Hvar er hæstv. atvinnuvegaráðherra? Ætlar hæstv. atvinnuvegaráðherra ekki að vera hér í salnum þegar þetta mál, sem hefur verið lýst sem meginmáli ríkisstjórnarinnar, máli sem samið var um við ríkisstjórnarborðið, að því er sagt og haldið fram í þessu máli — samið um við ríkisstjórnarborðið? Og hæstv. atvinnuvegaráðherra, sem fer með málaflokkinn, er falin sú ábyrgð að fara með viðkvæm mál, m.a. fiskveiðistjórnarkerfið, lætur ekki sjá sig í þingsal daginn sem ekki bara ein atkvæðagreiðsla heldur tvær atkvæðagreiðslur fara fram um málið. (Forseti hringir.) Ég kalla eftir því að hæstv. atvinnuvegaráðherra verði sóttur hingað og settur á ráðherrabekkinn.