niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.
Frú forseti. Ég sit ekki í hv. utanríkismálanefnd en mér þykir leitt að heyra frásögn af þeirri nefnd sem kemur því miður ekki á óvart. Þetta er stef sem við höfum séð ítrekað frá því að þessi ríkisstjórn tók við völdum þar sem því miður hefur ítrekað sýnt sig að hið eðlilega lýðræðislega samtal fær ekki að eiga sér þann mikilvæga og eðlilega stað sem þessu húsi ber. Að heyra af því að hér sé mögulega búið að auglýsa störf þegar það er ekki búið að samþykkja með lögum héðan að þetta verði að veruleika minnir líka á þegar ekki var skipað í stjórn því það átti að leggja hana niður sem var heldur ekki búið að gera að lögum.
Á einhverjum tímapunkti, frú forseti, verður hæstv. meiri hluti hér að muna að Alþingi Íslendinga er ekki stimpilpúði framkvæmdarvaldsins. Hann er það ekki. Alþingi Íslendinga er löggjafinn. Ef meiri hlutinn finnur það ekki hjá (Forseti hringir.) sér að bera virðingu fyrir því ferli verður hæstv. forseti að leiðbeina meiri hlutanum um það.