aðhald í ríkisfjármálum.
Frú forseti. Verðbólga mælist nú 5,2% og þetta er þriðja óheppilega mælingin í röð, svo ég noti nú orðfæri ríkisstjórnarinnar. Í síðasta mánuði var vísað í tímabundin áhrif og einskiptisaðgerðir en nú getur forsætisráðherra ekki bent á einskiptisaðgerðir eða einhverja aðila úti í bæ. Nú þarf ríkisstjórnin að horfast í augu við vandann. Á sama tíma er atvinnuleysi á uppleið og mælist nú 7,3%. Atvinnuleysið var 3,8% þegar þessi ríkisstjórn tók við. Þá var líka verðbólga á niðurleið. Vextir höfðu tekið að lækka og útlit var fyrir hallalausan ríkissjóð árið 2025. Ekkert, nákvæmlega ekkert af þessu á enn við. Til að bregðast við ástandinu, sem þó er sjálfskapað hjá ríkisstjórninni, gerir hún það sem hún gerir best, hún boðar aðgerðapakka á næstu dögum. Höfum við ekki öll heyrt þetta áður? Aðgerðapakka á næstu dögum. Hvernig væri að draga til baka allar þær misráðnu ákvarðanir sem þessi ríkisstjórn hefur tekið, t.d. skattahækkanir á heimilin og fyrirtækin í landinu, aukin ríkisútgjöld, augljós hagstjórnarmistök sem allir sjá nema ríkisstjórnin sjálf og svo Gylfi Magnússon, fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar? Þetta eru bara þrjár tillögur frá mér. Þið megið bara taka þær allar strax. En ég veit að ríkisstjórnin hefur engan áhuga á hagræðingartillögum. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Ætlar ríkisstjórnin í alvöru að halda áfram að kenna öðrum um eða ætlar hún loksins (Forseti hringir.) að læra af eigin mistökum, sýna aðhald í ríkisrekstri og leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu í þessu landi?