þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB.
Virðulegur forseti. Það er athyglisvert að heyra hæstv. utanríkisráðherra tala í þessum tóni þegar við munum flest eftir blaðamannafundinum með þáverandi hæstv. utanríkisráðherra, Össuri Skarphéðinssyni, og Stefan Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, sem ítrekaði að það væru engar undanþágur frá því að ganga í Evrópusambandið, engar undanþágur. En mig langar að spyrja: Nú þegar hæstv. utanríkisráðherra talar um að það sé nánast klukkutímaspursmál hvenær þessi þingsályktunartillaga kemur hér inn í þingið; áður en við förum að ganga til atkvæða er þá ekki rétt að við vitum hver samningsmarkmiðin eru? Hver eru samningsmarkmiðin? Er ekki rétt að upplýsa íslenska þjóð og Íslendinga um það hver verður nettókostnaðurinn á ári við það að ganga í Evrópusambandið? Hver verður kostnaður íslensku þjóðarinnar að vera aðili að Evrópusambandinu? Við sem ein ríkasta þjóð Evrópu munum borga tugi milljarða á hverju ári inn í Evrópusambandið nettó. (Forseti hringir.) Er ekki rétt, hæstv. utanríkisráðherra, að þær tölur liggi fyrir þegar fólk gengur til atkvæðagreiðslu?