157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

innflytjendur og atvinnuleysi.

[16:13]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Hjá ríkisstjórn sem er ekki feimin við að hrósa sér sætir það ákveðnum tíðindum þegar hæstv. fjármálaráðherra viðurkennir í fjölmiðlaviðtali að árangurinn í efnahagsmálum sé sannarlega undir væntingum, sem hann er. Þrátt fyrir kunnuglegar varnarræður hæstv. forsætisráðherra er verðbólgan lífseig, vextirnir háir, samdráttur mælist á flestum sviðum og það dregur úr fjárfestingum. Þar hjálpa skattahækkanir ríkisstjórnarinnar ekki. Atvinnuleysi hefur rokið upp í næstum sögulegar hæðir, upp í 7,3% samkvæmt Hagstofunni, og allra helst á meðal ungs fólks, 16,6%. Smá atvinnuleysi þarf auðvitað ekki að vera óeðlilegt við ákveðnar kringumstæður í efnahagslífinu en hér er það þó forvitnilegt. Jafnvel þótt atvinnuleysi hafi aukist hægt og rólega á síðasta ári voru áfram miklir fólksflutningar til landsins.

Árið 2025 fluttu hingað mun fleiri útlendingar en fóru úr landi, um 3.400 manns, sem er yfir meðaltali á öldinni og það gerist í hækkandi atvinnuleysi, 3.400 manns, jafnvel þótt alltaf sé fjallað um að þetta fólk komi hingað bara til þess að vinna. Þess má geta í þessu samhengi að á atvinnuleysisskrá eru rúmlega helmingurinn útlendingar þótt þeir séu aðeins tæplega fimmti hver íbúi á landinu. Eins og hæstv. forsætisráðherra sagði hérna fyrir tveimur árum, á kosningaári, þá gengur ekki að hafa saman opin landamæri og velferðarkerfi. Ríkisstjórnin hefur þó ekki unnið eftir þessari hugsjón — sem er reyndar engin hugsjón heldur bara staðreynd — og hér heyrist lítið núna til að tryggja að velferðarkerfi okkar verði t.d. ekki misnotuð þegar við erum komin í þessa viðkvæmu stöðu. Ekkert heyrðist af því t.d. að nýta betur heimildir ríkisvaldsins, sem sannarlega eru fyrir hendi, til að brottvísa EES-borgurum þegar þeir uppfylla ekki lengur skilyrði til dvalar, eru ekki að vinna, eru ekki í virkri atvinnuleit. Ekkert heyrist af því. Þvert á móti er farið í hina áttina og talað um það í nýju frumvarpi hæstv. heilbrigðisráðherra að stytta biðtíma fólks eftir aðgangi að sjúkratryggingum úr sex mánuðum í þrjá mánuði og senda þar með skilaboð um að einmitt hér sé velferðarkerfið opið og allir í stuði.

Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra, sem er nú hagfræðingur, (Forseti hringir.) hvort þetta ætti ekki alltaf að vera í hina áttina? Hvaða hvata er verið að skapa hérna og skýtur þessi þróun almennt ekki skökku við, að laða hingað fleiri þúsund innflytjendur á meðan t.d. ungir Íslendingar eiga þá bara (Forseti hringir.) sífellt erfiðara uppdráttar í samkeppni við þá við að fá þessi fáu störf sem verða til hérna?