157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.

[16:21]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér fór fram umræða áðan undir liðnum fundarstjórn forseta þar sem óskað var eftir atbeina forseta til að liðka fyrir nefndastörfum. Nú sé ég að hv. formaður utanríkismálanefndar hefur loksins séð sér fært að ganga í salinn; gott að fólk viti að framsögumaður málsins og formaður nefndarinnar voru ekki viðstaddir hér áðan þegar umræðan fór fram heldur voru á vappi á ganginum hér frammi. En ég held að það sé tilefni til þess fyrir hæstv. forseta að halda ekki bara fund með formönnum fastanefnda í næstu viku heldur mögulega með ráðherrum líka. Hér kom hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson upp áðan og vísaði til auglýsingar þar sem virðist eiga að styrkja áritunardeild utanríkisþjónustunnar áður en að þinglegri meðferð málsins er lokið. Við þurfum auðvitað að fá nánari upplýsingar um þetta í hv. utanríkismálanefnd, það liggur beinast við. Ég myndi segja að það virðist vera orðin full þörf á því að í stað þess að við séum að ræða hér alltaf um námskeið fyrir kjörna fulltrúa og fyrir okkur sem hér sitjum um hatursorðræðu og um jafnréttismál (Forseti hringir.) þá ætti kannski framkvæmdarvaldið að sitja námskeiði um stjórnskipun okkar, um lýðræði okkar og hlutverk þingmanna.