157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[17:44]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Sigurður Helgi Pálmason) (Flf):

Frú forseti.Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur . Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, og er m.a. lagt til að felld verði brott heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð án starfsleyfis leigubifreiðastöðvar þar sem ein leigubifreið sem hann er skráður eigandi eða umráðamaður að hefur afgreiðslu. Með breytingunum verður á ný komið á samræmdu fyrirkomulagi þar sem rekstrarleyfishafar starfa í tengslum við leigubifreiðastöð með starfsleyfi með það að markmiði að styrkja eftirlit, ábyrgð og neytendavernd. Auk þess eru lagðar til breytingar sem lúta m.a. að auknum skyldum leigubifreiðastöðva varðandi upplýsingaöflun, varðveislu gagna og því að tryggja sanngjarna og gagnsæja verðlagningu og farveg fyrir kvartanir neytenda yfir verði og gæðum þjónustu.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Við umfjöllun um málið hefur nefndin einnig haft hliðsjón af þeim umsögnum sem henni bárust á síðasta löggjafarþingi.

Frumvarpið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá umhverfis- og samgöngunefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 16. júní sl., sjá þskj. 729 í 388. máli. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er það nú endurflutt efnislega óbreytt utan þess að gildistöku frumvarpsins er frestað í samræmi við breytingartillögu meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar frá síðasta löggjafarþingi. Í umsögnum sem nefndinni bárust við umfjöllun málsins komu fram sambærilegar athugasemdir og á síðasta þingi og vísar meiri hlutinn til umfjöllunar sinnar og áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti og lúta að auknu öryggi farþega, áhrifum á farveitur og afgreiðslu á fleiri en einni leigubifreiðastöð.

Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu: Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar skráningu upplýsinga í rafræna skrá leigubifreiðastöðvar. Samkvæmt c-lið 3. gr. frumvarpsins skal leigubifreiðastöð búa yfir ákveðnum upplýsingum sem tilgreindar eru í sex töluliðum. Þar má sem dæmi nefna upplýsingar um rekstrarleyfishafa sem hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöðinni, hvaða leigubifreiðar eru tengdar stöðinni og skráningarnúmer þeirra og fjölda lausra leigubifreiða, staðsetningu og þjónustusvæði. Í 3. málslið a-liðar 1. mgr. 3. gr. frumvarpsins er kveðið á um að rekstrarleyfishafi skuli tryggja að allar greiðslur séu skráðar í gjaldmæli eða með öðrum fullnægjandi hætti þegar ferð er seld fyrir fyrirframumsamið áætlað eða endanlegt heildargjald og að upplýsingum þar um sé skilað til leigubifreiðastöðvar. Í minnisblaði innviðaráðuneytis til nefndarinnar, dags. 4. desember 2025, er með vísan til þessa bent á að tilgreina mætti með skýrari hætti að þær upplýsingar sem leigubifreiðastöð skal búa yfir skuli skráðar í rafrænu skrána. Meiri hlutinn tekur undir það og leggur til breytingu á 2. mgr. c-liðar 3. gr. frumvarpsins þess efnis.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar úttekt stafrænna kerfa leigubifreiðastöðva. Í 3. mgr. 6. töluliðar c-liðar 3. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að stafræn kerfi leigubifreiðastöðvar skuli tekin út a.m.k. árlega af sjálfstæðum og óháðum aðila. Sérstök áhersla skuli lögð á öryggi og gæði gagna og skal úttektaraðili gera skýrslu um framkvæmd úttektarinnar og skila til Samgöngustofu. Með vísan til þeirra markmiða frumvarpsins að tryggja öryggi farþega og efla traust almennings til leigubifreiðaaksturs leggur meiri hlutinn til nokkrar breytingar á ákvæðinu. Lagt er til að skerpt verði á því í lögunum að það sé Samgöngustofa sem beri ábyrgð á eftirliti með gæðum og öryggi gagna í stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva en stofnunin feli óháðum aðila að gera úttekt á stafrænu kerfunum. Þá leggur meiri hlutinn til að skerpt verði á orðalagi ákvæðisins svo skýrt sé að kostnaður við úttektina falli á leigubifreiðastöð en ekki á Samgöngustofu sem eftirlitsstjórnvald. Þá leggur meiri hlutinn til að úttektaraðilar skuli hafa fengið samþykki Samgöngustofu til að mega framkvæma úttektir á stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva samkvæmt ákvæðinu svo tryggja megi gæði slíkra úttekta og stuðla þar með að því að þær verði fullnægjandi í stað þess að endurtaka þurfi úttekt með tilheyrandi kostnaði fyrir viðkomandi leigubifreiðastöð. Til að veita leigubifreiðastöðvunum frekara aðhald leggur meiri hlutinn til að Samgöngustofa geti látið framkvæma viðbótarúttekt telji hún tilefni til. Að lokum telur meiri hlutinn eðlilegt að Samgöngustofa hafi heimild til að ákveða að leigubifreiðastöð beri kostnað af slíkri viðbótarúttekt ef í ljós koma verulegir annmarkar sem varðað geta öryggi leigubifreiðaþjónustu. Ef svo er ekki stendur Samgöngustofa straum af kostnaði við viðbótarúttektina.

Þá er í þriðja lagi lögð til breyting er varðar mat á góðu orðspori samkvæmt lögunum. Samkvæmt 5. gr. laganna þarf hver sá einstaklingur sem stundar leigubifreiðaakstur að hafa til þess atvinnuleyfi. Í ákvæðinu er mælt fyrir um skilyrði sem umsækjandi þarf að uppfylla til að hljóta slíkt leyfi og í 6. gr. er mælt fyrir um þau skilyrði sem einstaklingur þarf að uppfylla til að hljóta rekstrarleyfi. Meðal þeirra er skilyrði um gott orðspor. Í 2. tölulið 2. mgr. 5. gr. og 3. tölulið 2. mgr. 6. gr. er kveðið á um að við mat á orðspori beri að líta til þess hvort viðkomandi hafi gerst sekur um refsiverða háttsemi sem gefur tilefni til að draga í efa hæfni hans til að starfa sem leigubifreiðastjóri eða gefur til kynna að viðkomandi njóti ekki nauðsynlegs trausts til að geta gegnt starfanum. Þá er tekið fram að hafi brot verið smávægilegt eða fimm ár liðin frá uppkvaðningu dóms eða frá viðurlagaákvörðun sé heimilt að veita leyfi. Hafi brotið verið stórfellt og varðað við XXIII. kafla almennra hegningarlaga um manndráp og líkamsmeiðingar skuli ekki veita leyfi fyrr en að tíu árum liðnum frá uppkvaðningu dóms. Hafi brotið varðað við 22. kafla laganna um kynferðisbrot skuli ekki veita leyfi. Samgöngustofu er heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá um það hvort umsækjandi hafi gerst sekur um refsiverða háttsemi. Fyrir nefndinni komu fram þau sjónarmið að deila megi um hvort þessi skilgreining laganna á góðu orðspori umsækjanda samræmist almennum málskilningi. Í greinargerð með frumvarpi er varð að lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, kemur fram að eitt af skilyrðum leyfisveitingar samkvæmt eldri lögum hafi verið að umsækjandi hafi „ekki verið dæmdur til refsivistar eða framið alvarlegt eða ítrekað brot á lögum og reglugerðum sem um starfsgreinina gilda“. Eðli leigubifreiðastjórastarfsins, fjölbreyttur hópur viðskiptavina og þær aðstæður sem aksturinn fari fram við kalli á að öryggi farþega sé hafið yfir allan vafa. Þá segir að gert sé ráð fyrir því að Samgöngustofa muni áfram líta til þess að umsækjandi hafi ekki verið dæmdur til refsingar eða framið alvarlegt eða ítrekað brot gegn hegningarlögum eða lögum og reglugerðum sem varða starfsgreinina, nema langt sé um liðið síðan dómur féll, og að lög og reglugerðir sem varða starfsgreinina geti t.d. verið umferðarlög og reglur settar samkvæmt þeim. Í ákvæði gildandi laga er á hinn bóginn ekki vísað til brota gegn lögum og reglugerðum sem varða starfsgreinina þegar kemur að mati á góðu orðspori. Í minnisblaði frá innviðaráðuneytinu til nefndarinnar, dags. 4. desember 2025, er tekið undir að skilgreining laganna á því hvað teljist vera gott orðspor kunni að vera þrengri en sá skilningur sem almenningur leggur í merkingu hugtaksins.

Meiri hlutinn tekur undir það mat ráðuneytisins og leggur til breytingu á orðalagi 5. og 6. gr. laganna þess efnis að tiltekið verði í lögunum að líta beri til þess við mat á orðspori hvort viðkomandi hafi brotið ítrekað eða með alvarlegum hætti gegn lögum og reglugerðum sem varða starfsgreinina. Þar undir eiga t.d. lög um leigubifreiðaakstur, umferðarlög og lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og reglur settar samkvæmt þeim. Með breytingunni eru gerðar frekari kröfur til leigubifreiðastjóra við útgáfu atvinnuleyfis og rekstrarleyfis og lagatextinn færður til samræmis við framangreinda skýringu í greinargerð þannig að einnig sé litið til þess við mat á góðu orðspori hvort viðkomandi hafi brotið gegn lögum og reglugerðum sem varða starfsgreinina en ekki einungis brota gegn almennum hegningarlögum. Meiri hlutinn telur breytinguna til þess fallna að ná betur markmiði þessara ákvæða, þ.e. tryggja að einstaklingar sem stunda leigubifreiðaakstur hafi ekki sýnt af sér siðferðilega ámælisverða hegðun sem er til þess fallin að draga úr trausti til þeirra sem leigubifreiðastjóra, og tryggja þar með öryggi farþega með betri hætti.

Að lokum er í fjórða lagi lögð til breyting er varðar gildistöku laganna. Gildistökuákvæði 5. gr. frumvarpsins kveður á um að lögin taki gildi 1. janúar 2026. Það tímamark er liðið og leggur meiri hlutinn því til að gildistöku frumvarpsins verði frestað til 1. júní 2026 með vísan til sömu raka og í áliti nefndarinnar á síðasta þingi, þ.e. að nauðsynlegt sé að veita leigubifreiðastöðvum svigrúm til að bregðast við þeim breyttu kröfum sem frumvarpið leggur á stöðvarnar og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að standa undir þeim. Meiri hlutinn telur hins vegar rétt að ný grein um breytingu á 5. og 6. gr. laganna varðandi mat á góðu orðspori taki þegar gildi.

Þá er lögð til ein lagatæknileg breyting sem þarfnast ekki sérstkrar umfjöllunar.

Af framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn María Rut Kristinsdóttir, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Dagur B. Eggertsson og Þóra Gunnlaug Briem.