157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[17:57]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsögu nefndarálits um þetta mikilvæga mál. Það var farið í breytingar á löggjöf sem snýr að leigubílum og markmiðið var síðan að fara í endurskoðun og hér er verið að ráðast í slíka endurskoðun og hér er verið að ráðast í breytingar sem skipta máli. Það skiptir máli að við séum að styðja við öryggi farþega og þess vegna er stöðvaskyldan dæmi um jákvæða framför. Þess vegna er líka mikilvægt hvernig er horft til þess að skoða bakgrunn þeirra sem aka farartækjum. Allt er þetta eitthvað sem passar upp á að öryggi sé í forgrunni.

Mig langar hins vegar til að spyrja hv. þingmann varðandi annað atriði sem kemur ekki fram í þessu en tengja má við öryggi að ákveðnu leyti og það er íslenskukunnátta. Kom það upp að einhverju leyti hjá ráðherra og ráðuneyti, af því að það var ekki rætt sérstaklega sem hluti af nefndarvinnunni, hvort ekki ætti að skerpa á mikilvægi þess að grunnfærni í íslensku fylgdi þessu ábyrgðarmikla starfi, sem myndi um leið hjálpa fólki sem hingað hefur flutt að efla okkar tungu, því að það skiptir samfélagið allt miklu máli? Þannig að ég spyr hv. þingmann: Kom til greina að bæta íslenskukunnáttu inn sem skilyrði í þessari vinnu? Sú sem hér stendur telur mikilvægt að við náum betur utan um það í þessu frumvarpi og heilt yfir í okkar samfélagi.