157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[17:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Sigurður Helgi Pálmason) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir spurninguna og andsvarið. Íslenskan er lykilatriði og er í raun og veru krafa sem hefur verið talað um að gera. Það var ekki talið á þessum tímapunkti að þetta kæmi fyrir nefndina vegna þess að þarna var í raun og veru verið að ræða og laga það sem kemur að öryggi. Síðan, eins og við vitum, eru að koma reglugerðarbreytingar. Það þarf að skoða þetta með íslenskukunnáttuna mjög náið og það þarf að gera það mjög vel og ég veit að það er verið að skoða það.