157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[18:05]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og í framhaldi af þessu verður áhugavert að sjá hverju þessi starfshópur skilar af því að ég skil þetta þannig að við höfum ekki tíma til að bíða eftir niðurstöðu hans en væntanlega verður eitthvað sem kemur frá honum. Ég velti fyrir mér lágmarksfjölda bifreiða. Við ætlum að hafa nokkuð gott eftirlit, ef ég skil það rétt, með þessum stöðvum og eins og ég skil þetta þá eiga þær að vera með nokkuð fullkomið kerfi því að það á að vera hægt að sækja mikið af upplýsingum í þetta kerfi. Ég velti því hreinlega fyrir mér hvort það geti ekki verið takmarkandi þáttur í þessu að kerfin eru svo dýr og ef það þarf mjög reglulega að yfirfara þau þá kostar það peninga. Ég velti fyrir mér hvort við séum ekki í raun með tæknilegar hindranir gagnvart ESA í þessu máli.