157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[18:07]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni og framsögumanni, Sigurði Helga Pálmasyni, fyrir hans yfirferð. Svo það sé sagt strax í upphafi þá held ég að hér sé um að ræða jákvætt skref. Það er hins vegar afar stutt, þetta skref, nær yfir afar takmarkaðan vanda þess sem leigubílaumhverfið er að fást við þessa dagana. Það kom fram í samskiptum hv. þingmanns við aðra sem voru hér með fyrirspurnir að það er ekkert í þessu frumvarpi sem slíku sem kemur í veg fyrir að það sem hefur verið í gangi núna, alls konar óeðlileg hegðun aðila á markaði, geti ekki haldið áfram. Hvað á ég við með því? Jú, m.a. það að með stöðvaskyldunni, sem vissulega er jákvæð og ekki síst sú krafa á stöðina að safna og varðveita gögn upp á það að hægt sé, ef eitthvað kemur fyrir, að rekja sig í gegnum málið, þá er það engu að síður svo að þó að málið verði að lögum þá geta aðilar verið t.d. með tvo bíla, einn ábyrgðarmann stöðvar. Sá má ekki vera skráður eigandi bílsins, ef ég skil frumvarpið rétt, ef það væri t.d. bara einn bíll. En ef eitthvað kemur upp á þá er ekkert í þessu frumvarpi sem kemur í veg fyrir að viðkomandi bílar verði áfram í þjónustu og ábyrgðarmanni stöðvarinnar verði svissað fyrir bílstjóra kannski á öðrum bílnum þannig að það mál er í raun og veru óleyst. Frumvarpið nær yfir afar takmarkaðan hluta vandans. Ég hefði gaman af því að heyra hvað hv. þm. Sigurði Helga Pálmasyni þykir um þessar vangaveltur mínar því ég veit að tilgangur frumvarpsins er góður og skýr. En ég leyfi mér að efast um, frú forseti, að hann náist með þessu frumvarpi.