leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég túlka þetta svar sem svo að hann væri að taka undir með þeim áhyggjum sem ég var að viðra áðan, þ.e. að þetta frumvarp nær ekki utan um vandann. Þetta er ágætis fyrsta skref en það er langt í land með að frumvarpið nái utan um vandann. Við getum nefnt dæmi eins og þegar bílstjórar þykjast vera uppteknir, neita þjónustu af því að þeim líkar ekki vegalengdin á ferðinni o.s.frv. Það er annað líka sem ég sakna mjög og það er að hæstv. ráðherra, það er kannski ósanngjarnt af mér að ætla hv. þingmanni að svara fyrir það, sem og hv. þingmenn hér skuli ekki hafa þorað að fara í það reginhneyksli sem átti sér stað á sínum tíma þegar aðilar fengu leyfi út á próf sem þeir tóku með ólöglegum hætti. Ef viðkomandi aðili væri að keyra rútu — það getur munað bara einum farþega hvort bíllinn telst vera leigubifreið eða rúta — eða ef um væri að ræða farþegasiglingar, telur hv. þingmaður að slíkir ökumenn eða skipstjórar væru enn að keyra eða sigla á slíku leyfi?