álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Ég held áfram með það mál sem ég ávarpaði hérna áðan því að mér er svo ofboðið. Það hefur ítrekað komið fram hjá meiri hluta atvinnuveganefndar að lögfræðingar hafi komið að vinnslu þessa máls. Við höfum óskað eftir því að þeir lögfræðingar stígi fram og að við fáum nöfnin þeirra. Nei, það má ekki gefa það upp, það er leyndarmál. En það eru a.m.k. fimm lögfræðingar í ríkisstjórnarflokkunum: Dagbjört Hákonardóttir, Eyjólfur Ármannsson, Inga Sæland, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Hafa þau virkilega ekki kynnt sér þetta mál eða eru það kannski þau sem komu að gerð þess? Það vekur auðvitað athygli að aðeins einn fjölmiðill sem ég man eftir hefur fjallað um málið, en það er Morgunblaðið. Af samtölum við þingmenn þá er þetta allt gert í þágu þess að halda ríkisstjórnarsamstarfinu saman. Sú saga gengur um salinn að þingmenn Flokks fólksins (Forseti hringir.) hafi hótað því að draga úr stuðningi sínum við Evrópuleiðangur ríkisstjórnarflokkanna nema þetta verði samþykkt. Það er orðrómurinn sem gengur. (Gripið fram í: Svei á sögur.)
Virðulegur forseti. Við erum að brjóta hér blað (Forseti hringir.) ef þetta mál verður unnið eins og liggur fyrir, það sett á dagskrá þingsins í dag og verður að lögum sem verða þá væntanlega samþykkt hér næstu daga. Ég man aldrei eftir því að Alþingi hafi svo með opin augun. (Forseti hringir.) eða meiri hlutinn, gengið til slíkra ósæmisverka sem þetta er.