stjórnvaldsaðgerðir Matvælastofnunar.
Virðulegi forseti. Tilefni þessarar skýrslubeiðni er vaxandi umræða og gagnrýni á framkvæmd eftirlits Matvælastofnunar með dýravelferð, einkum varðandi samræmi í beitingu úrræða, eftirfylgni vegna ítrekaðra brota og skýrleika þeirra viðmiða sem lögð eru til grundvallar þegar gripið er til íþyngjandi stjórnvaldsaðgerða. Ýmis atvik og tilkynningar hafa vakið upp spurningar um hvernig þessum úrræðum sem MAST hefur yfir að ráða er beitt. Bæði innlend og erlend dýraverndarsamtök hafa sett fram gagnrýni í þessum efnum. Í skýrslubeiðninni eru talin upp dæmi um tilvik og tilkynningar sem snúa að gæludýrum, hrossum, svínum og búfé. Í nýlegri skýrslu atvinnuvegaráðherra um aðbúnað svína er talað um almennar undanþágur án sundurliðunar varðandi lagastoð, verklag og eftirlit með framkvæmd. Þetta og fjölmargt annað kallar á rannsókn á stjórnvaldsaðgerðum þessarar mikilvægu stofnunar.