leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að taka undir gagnrýni hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar af því að ég hélt að við værum að fara í 3. umræðu um þetta mál. Ég hef tekið þátt í umræðum um þetta mál á síðustu árum og tek undir það að það er fjöldi reglugerðarheimilda hjá hæstv. ráðherra sem hann hefur valið að beita ekki. Þess vegna er hálffurðulegt þegar fulltrúi þessarar ríkisstjórnar, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, kemur upp og segir að hér sé verið að hreinsa til eftir fyrri ríkisstjórn, sem var að opna á nútímann. Og alveg eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason sagði hér áðan þá var ófremdarástand á þessum markaði áður en brugðist var við og létt á. Ég spyr hreinlega: Hver er afstaða Viðreisnar í dag, sem var með sérstök mál um þetta, óskaði eftir sérstakri umræðu og taldi einmitt að fyrrverandi ríkisstjórn hefði ekki gengið nógu langt? Hver er afstaðan nú? Er hún bara alveg breytt eða er ríkisstjórnin kannski ekkert samstiga um allt og stundum þarf bara (Forseti hringir.) að þegja og greiða atkvæði eins og Flokkur fólksins valdi í þetta skiptið?