157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[11:25]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Varðandi reglugerðarheimildirnar, sem eru 12 í lögunum — sem er alveg ótrúlegt, þetta eru illa samin lög, núgildandi lög, ég hef aldrei séð jafn illa samin lög á ævinni (Gripið fram í.) — þá hafa verið reglugerðarbreytingar í samráðsgátt. Þær verða birtar núna á næstu dögum. Það er ekki hægt að gera þær breytingar með reglugerð sem við erum að samþykkja hér, t.d. eins og stöðvaskylduna. Stöðvaskyldan er tekin upp vegna þess að eðli samskipta eftirlitsstöðvar og stjórnvalda er öðruvísi, allt öðruvísi. Við getum haft blandað kerfi sem er í dag. ESA er á móti því. Við getum haft stöðvaskyldu eða enga stöðvaskyldu. Við erum núna að taka upp stöðvaskyldu vegna þess að eðli stöðvar með háttsemisreglur gagnvart bílstjórum sínum er allt öðruvísi.

Varðandi gott orðspor. Gott orðspor í núgildandi lögum er þannig að þú þarft að vera sakfelldur í sakamáli til að hafa ekki gott orðspor. Það hefur leitt til þess að það er ekki hægt að svipta einstaklinga leyfi. Þetta munum við svo sannarlega laga og við munum laga fleiri atriði í þessum lögum. Núna er bara fyrsta skrefið til að tryggja öryggi farþega og það er mikilvægt. Þessi lög, sem komu á sínum tíma, komu (Forseti hringir.) nánast eftir Covid. Það var skortur á bílstjórum og svoleiðis. Ég tel að þau lög (Forseti hringir.) hafi ekki verið nægilega góð og það erum að laga. Við eigum að vera sama samtaka í því að lagfæra það sem illa hefur farið. Það vita allir hvernig ástandið er á þessum markaði og við eigum öll að vera sammála um að laga það sem illa hefur farið. Þetta ástand má ekki vera áfram. (Forseti hringir.) Öryggi farþeganna skiptir öllu máli.

(Forseti (): Þegar tekið er til máls um atkvæðagreiðslu er ræðutími ein mínúta.)