157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[11:28]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn voru í ríkisstjórn breyttu þau leigubílamarkaðnum í gróðrarstíu skipulagðrar glæpastarfsemi. (Gripið fram í: Ha?) Og nú þegar flokkarnir eru í stjórnarandstöðu þá hamast þeir ýmist gegn því að leigubílamarkaðurinn sé lagaður og öryggi tryggt hérna með sterkari lagaumgjörð eða koma með miklar umvandanir við innviðaráðherra sem ætti að gera þetta allt saman einhvern veginn allt öðruvísi og miklu betur. Ég held að við höfum heyrt það ágætlega áðan að innviðaráðherra er á réttri leið með þessi mál. Við skulum klára þetta mál og halda áfram að styrkja lagaumgjörðina og bæta öryggi á leigubílamarkaði. Það er nákvæmlega það sem við erum að gera með þessu máli. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)