leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Ég segi nei. Það er svolítið merkilegt með Viðreisn að hér kemur formaður Viðreisnar upp, hæstv. utanríkisráðherra, og segir: Frelsi með ábyrgð. Við sem trúum á frelsið vitum að frelsið er með ábyrgð. En frelsið á ekkert skjól lengur í húsum Viðreisnar og eina ábyrgðin á frelsinu hjá Viðreisn í dag er ríkisábyrgð. Allt á að fara á ríkisjötuna, allt verður að vera með ríkisábyrgð. Frelsi Viðreisnar þarf að vera með ríkisábyrgð. Viðreisn treystir frelsinu best ef það er undir sjáanlegu auga ríkisins.