157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB .

[15:02]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að upplýsa hæstv. forseta um alvarlega athugasemd stjórnarandstöðunnar á fundi hv. utanríkismálanefndar í morgun um að hæstv. ráðherra hafi ekki viðhaft lögbundið samráð við nefndina í tengslum við þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég sé að hæstv. ráðherra er mætt í dag. Sömuleiðis gerði stjórnarandstaðan alvarlegar athugasemdir við það að hæstv. ráðherra hafi ekki mætt á fund nefndarinnar í morgun þrátt fyrir eindregnar óskir þar um, sömuleiðis athugasemdir við að ekki hafi verið viðhaft opið samráð við almenning áður en þingsályktunartillagan var lögð fram eins og þó er skylt samkvæmt gildandi ríkisstjórnarsamþykkt. Það er með ólíkindum að lesa um fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu á erlendum ESB-miðlum á meðan farið er á svig við lög og reglur hér í þinginu um samráð við þingið og um samráð við almenning. Þetta er nú öll virðingin fyrir þjóð og þingi.