málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Það er varla til of mikils mælst að hæstv. forseti bregðist við þegar fjöldi hv. þingmanna gerir athugasemd við það að hæstv. utanríkisráðherra, og fyrir vikið ríkisstjórnin öll, sé ekki að fylgja lögum um þingsköp. Það eina sem hefur gerst í millitíðinni frá því að hér var síðast rætt um þetta er að hér hefur farið fram fyrirspurnatími þar sem hæstv. forsætisráðherra hefur heldur ýtt undir það sem menn eru farnir að kalla upplýsingaóreiðu. Hæstv. ráðherra segist ekkert vita hvað komi út úr samningum og segist ætla að vera harður í horn að taka í samningaviðræðum. Þetta ber vott um það að hæstv. ráðherra geri sér ekki grein fyrir því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. En síðast þegar viðræður áttu sér stað við Evrópusambandið veitti Evrópusambandið styrki til íslenskra ráðuneyta, styrki til að hjálpa þeim að taka þátt í viðræðunum. Af hverju? Af því að þetta voru ekki samningaviðræður. Þetta snerist um það að Íslendingar útskýrðu hvernig þeir ætluðu að gangast við kröfum Evrópusambandsins.