157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:57]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar fyrra andsvar. Hvernig á maður að svara svona? Ég er í raun og veru núna ekki að ræða um hvernig ferlið fer af stað, hvernig við ætlum að tryggja forræði eins og þú ert að tala um. Ég ætla bara treysta því ferli að það fari af stað og það verði menn og konur sem muni passa upp á hagsmuni Íslands eins og þeir mögulega geta. Síðan þegar kemur samningur þá ætla ég, eins og vonandi allir aðrir Íslendingar, að lesa samninginn og mynda mér skoðun út frá því, hvort fólki finnist að það sé búið að tryggja þessa hagsmuni eða ekki. En það kemur í ljós þegar samningurinn er kominn.